VR vísa deilu til sáttasemjara/en og aftur kemur í ljós að útflutflutningur er undirstaðan undir verslun og viðskipti !!!

VR vísa deilu til sáttasemjara
Innlent | mbl.is | 26.4.2011 | 17:28

Hús verslunarinnar.VR hefur ákveðið að vísa kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara, en heimild til þess var samþykkt á fundi stjórnar VR fyrir helgi. Fyrr í dag vísaði Flóabandalagið deilu sinni við SA til sáttasemjara.

Samninganefnd Alþýðusambands Íslands ákvað á fundi í dag að beina því til aðildarsambanda og félaga að vísa kjaradeilum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara og setja allan þrýsting á um að tryggja launahækkanir á þessu ári.

Ásta Rut Jónasdóttir, varaformaður VR, segir það ekki hafa ráðið úrslitum. „Við bara náðum ekki lengra með deiluna við SA,“ segir hún og bendir á að málið sér margþætt. ASÍ komi að málinu en einnig aðildarfélögin sér.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði í dag, að hugsanlega yrði að grípa til verkfallsaðgerða í því skyni að rjúfa þá kyrrstöðu sem upp sé komin í kjaraviðræðum.

Aðspurð segir Ásta Rut þetta ekki hafa verið rætt innan VR. „En ég held að menn muni skoða það í framhaldinu. Við auðvitað vísum þessu fyrst til ríkissáttasemjara áður en farið verður í einhverjar áframhaldandi pælingar um hvað við gerum næst,“ segir Ásta.///allt Þetta blessað fólk sem stundar verslun og viðskipti er ekki svo vitgrand að það skilji ekki að það er númer eitt að styrkja útflutning og það sem gefur gjaldeyrir,það er málið,það virðist oft misskiljast að á því gengur malið okkar allra i nútíma Þjóðfélagi,allir varða að standa þarna saman og ekki hundsa það,það er svo að allir eru og vilja kauphækkun,en grunnurinn er að útflutningur gangi ,og við öflum gjaldeyris,það erum við þó öll sammála um !!!en ekki að rífast um hver á hvað,við verðum að standa þarna saman ekki  spurning/Halli gamli


mbl.is VR vísar deilu til sáttasemjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Afhverju ætti ég að "standa saman" með einhverjum sem vill eitthvað allt annað en að ég fái að borða án þess að standa í biðröð til að betla, hvað þá að ég fái að búa börnunum mínum heimili? Samstaða er engin nema hún sé í báðar áttir, og hún getur aldrei orðið til með boðvaldi eins né neins. Auðvaldsstéttin hefur rænt íslenskan almenning og þar til ránsfengnum verður skilað er ekkert til að semja um nema lengd fangelsisvistar hinna brotlegu og miskabætur þolenda.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.4.2011 kl. 18:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband