3.5.2011 | 12:44
Áhrifin sambærileg en efnin skaðlegri/þetta mjög alverlegt mál og verður að taka föstum tökum!!!
Innlent | Morgunblaðið | 3.5.2011 | 10:30
Andlát ungrar konu um liðna helgi hefur sett óhug að mörgum. Þó svo að óyggjandi sannanir liggi ekki fyrir bendir ýmislegt til þess að konan unga hafi orðið fíknefnum að bráð.
Andlát ungrar konu um liðna helgi hefur sett óhug að mörgum. Þó svo að óyggjandi sannanir liggi ekki fyrir bendir ýmislegt til þess að konan unga hafi orðið fíknefnum að bráð.
Þá er sérstaklega horft til afleiðu af amfetamíni sem virðist fara hægt og rólega á milli landa með óvenjulega háu hlutfalli dauðsfalla. Í mörgum tilvikum virðist sem svo neytendur hafi ekki áttað sig á hversu hættulegt efnið PMMA er.
Lögreglan á Borgarnesi fann fyrst efnið hér á landi, í töfluformi. Karlmaður sem hafði þær í vörslum sínum var færður til skýrslutöku að nýju til að freista þess að varpa ljósi á uppruna efnisins og útbreiðslu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins hefur skýrsla verið tekin af hátt í þrjátíu einstaklingum vegna málsins. Rannsóknin er umfangsmikil og ástæðan ærin; koma verður í veg fyrir fleiri dauðsföll af völdum efnisins.
Ekkert jákvætt um PMMA
Ekki þarf að leita lengi á veraldarvefnum til að finna umfjöllun um efnið, PMMA, eða paramethoxýamfetamín. Nokkuð liggur fyrir um það og ekkert jákvætt. Staðreyndin er sú að framleiðendur fíkniefna leita sífellt leiða til að útbúa efni sem eru ekki á listum yfir ávana- og fíkniefni auk þess sem sífellt er leitast við að halda kostnaði við framleiðslu í lágmarki og hámarka gróða. Þar fæðast afleiður fíkniefna, sem hafa sambærileg áhrif en eru oftar en ekki skaðlegri neytendunum.Afleiður fíkniefna rata hingað til lands eins og annað. Skemmst er að minnast þess að í desember á síðasta ári reyndi lettneskur ríkisborgari að smygla til landsins tæpu hálfu kílói af efninu mefedron, sem einnig er afleiða af amfetamíni og á að hafa svipaða virkni og e-töflur. Styrkleiki efnisins var afar hár og víst að hægt var að drýgja það töluvert með íblöndunarefnum. Líkt og með PMMA hafa dauðsföll bæði í Bandaríkjunum og Evrópu verið rakin til mefedron.
Fleiri slík mál hafa komið upp á undanförnum misserum því að í desember 2009 voru tveir karlmenn handteknir fyrir innflutning á tæpum fjórum kílóum af 4-flúoróamfetamíni. Þeir voru hins vegar sýknaðir í héraðsdómi þar sem efnið var ekki bannað hér á landi á þeim tíma. Í greinargerð Jakobs Kristinssonar, hjá Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, kom fram að um afleiðu af amfetamíni sé að ræða sem hefði svipaða verkun. Hins vegar væru takmarkaðar upplýsingar til um efnið.
Að endingu má taka fram að gerð var tilraun til að flytja inn til landsins um 15 þúsund e-töflur í desember sl. Miðað við það er ljóst að eftirspurn eftir e-töflum er töluverð hér á landi. Og þó ljóst sé að aldrei er hættulaust að nota slíkar töflur er hættan margföld á meðan efni á borð við PMMA er í umferð.
Víða varað við
Efnið sem til rannsóknar er, PMMA, og varað hefur verið við hefur fundist í alla vega tíu tegundum af töflum, sem líkjast e-töflum, í Hollandi. Viðvörun hefur meðal annars verið gefin út þar, í Noregi og einnig af lögregluyfirvöldum í áströlsku borginni Perth en þar lést ungur karlmaður í byrjun janúar sl. eftir að hafa tekið inn efnið.Endaði með asetóneitrun
Af samtölum við einstaklinga sem starfa í meðferðargeiranum er ljóst að á flestu þarf að vara sig sem keypt er í undirheimunum. Á undanförnu misseri hafi þannig komið upp nokkur tilvik þess að einstaklingar hafi veikst heiftarlega af drykkju landa. Meðal annars þurfti að leggja karlmann inn á sjúkrahús vegna asetóneitrunar sem rekja mátti til landa.Í samtali við Morgunblaðið sagði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, slík mál sjaldnast koma inn á borð lögreglu, eðli málsins samkvæmt. Hins vegar sé ljóst að landabrugg hafi aukist og ekki víst að í öllum tilvikum sé vandað vel til verka; áfengið jafnvel sett í sölu áður en það er tilbúið. Þegar svo er má vera ljóst að veikindi, og jafnvel mjög slæm, hljótist af.//////þetta er mjög svo alvarlegt mál sem ber að taka mjög alvarlega ,ekki spurning ,auðvitað öll eiturlyf, og þetta er hættan að blandað sé i það einhverjum óþverra!!! en það þar og verður að' taka öll höndum saman með lögreglu og gefa allt uppsem við vitum um slík ,að þarf að verða þarna breyting á ,það er of mikið þögn um þessi mal og við verum öll að vera á verði ekki bara löggæslan ,allir sem einn/Halli gamli
Áhrifin sambærileg en efnin skaðlegri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 1046584
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.