Samningar auka verðbólgu um 0,5%/ekkert getur komið í veg fyrir þetta nema afnema vertrygginguna um þennan tima!!!

Samningar auka verðbólgu um 0,5%
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 11:21

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir fylgjast með... Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að eftir því sem Hagstofan komist næst yrðu áhrif væntanlegra kjarasamninga á verðlagið þau að verðbólga verði 0,5% meiri á samningstímanum en ella.

Jóhanna var að svara fyrirspurn frá Bjarna Benediktssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks, sem vísaði til þess að Seðlabankinn hefði lýst efasemdum um að þær launahækkanir, sem nú sé verið að semja um, væru ekki raunhæfar miðað við stöðu hagkerfisins og kynnu að leiða til aukinnar verðbólgu. Spurði Bjarni hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera til að auka hagvöxt svo efnahagskerfið gæti staðið undir þessum launahækkunum.

Jóhanna sagði, að vissulega væri um að ræða verulegar kauphækkanir, sem kæmu misjafnlega niður á atvinnugreinum. Menn hefðu þannig áhyggjur af áhrifum kauphækkananna á einstakar greinar, einkum verslun sem standi nokkuð höllum fæti.

Allt færi þetta þó eftir því hvernig ganga muni að fylgja eftir fjárfestingaráformum sem tengjast kjarasamningunum, þeim að fjárfestingar aukist úr 13% í 20% af landsframleiðslu. Gangi það eftir megi búast við 0,5% meiri verðbólgu og 6-8% meiri kaupmætti að jafnaði á samningstímanum, að hagvöxtur verði 2-3% á þessu ári og 4-5% á ári á næstu tveimur árum. 

Bjarni sagði, að þegar Seðlabankinn talaði um óraunhæfar launahækkanir vildi forsætisráðherra tala um Hagstofuna. Stóra vandamálið í íslensku efnahagslífi, væri að ríkisstjórnin hefði ekki svarað því hvar í atvinnulífinu hagvöxturinn eigi að myndast.////það sjá allir að það eina sem hægt er allavega um tíma að ,að afnema vertrygginguna ekki spurning um það ,annaða er ekki inn i myndinni annars er þetta allt af okkur hirt!!!það er svo að hagvöxtur verður ekki nema gera eitthvað mikið ´framkvæmdum og það fljótt ekki bara geyma það eins og þessi ríkisstjórn vill,strax verur að virkja og klárra þessi álver tvö ekki spurning,göng á göng ofan bjarga ekki atvinnu nú bili það er allt annað sem er mannfrekt,og það er malið það er ekkert annað sem alltaf er verið að biða aftur,rafmagnið er okkar auðlind, vatnið og fiskurinn og Álið það er svo og ferðamennskan það er gjaldeyrisskapandi og við þurfum það ekki spurning,auka aflann og auðlindirnar í okkar eigu og borgað sá fyrir leiguna sæmilega/Halli gamli P/s það sem maður geymdi er að verðbólga gætu farið úr böndum eg ekki stemt stigi við henni uppí 2 stafa tölu!!!/Sami


mbl.is Samningar auka verðbólgu um 0,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband