8.5.2011 | 12:57
Mótmæla lægra kaupi Íslendinga/Ef rétt er hermt að Íslendingar hefðu ekki fengið störfin,er þetta afsakanlegt!!!!
Innlent | mbl.is | 7.5.2011 | 10:29
Fimmtíu starfsmenn ferjunnar Norrænu skrifa undir yfirlýsingu um að þeir séu á móti ráðningarsamningum sem valda því að Íslendingar eru með 29% lægri laun en aðrir starfsmenn borð fyrir jafn langan vinnudag og sömu störf og hinir.
Í bréfi sem mbl.is barst frá íslenskum skipverjum um borð segir að starfsmönnum um borð og félögum í Færeyska fiskimannafélaginu þyki brotið á rétti sínum. Einnig að Sjómannafélag Íslands sé að stuðla að því að gera Íslendinga að ódýru vinnuafli.
Hingað til hafa allir Íslendingarnir haft sömu kjör og aðrir starfsmenn Smyril Line. Núna hafa verið teknar í gegn breytingar sem felast í því að Íslendingar hljóta ekki sömu kjör og starfsmenn af öðru þjóðerni, segir í bréfinu.
Þar kemur fram að til þessa hafi Smyril Line annast allar ráðningar en nýlega var færeyska starfsmannaleigan Shipping.fo fengin til að ráða nýja Íslendinga til fyrirtækisins.
Shipping.fo hefur sett fram nýjan kjarasamning sem brýtur á réttindum íslenskra starfsmanna samkvæmt íslenskum lögum. Sjómannafélag Íslands hefur samþykkt þennan samning. Kveður hann m.a. á um að við skulum lúta reglugerðum Sjómannafélags Íslands og samningum, borga færeyska skatta en öll önnur mánaðarleg gjöld til Íslands, segir í bréfinu.
Þeir segja enn fremur að þeir hljóti 29% launalækkun frá þeim launum sem þeir höfðu í fyrra og því sem kollegar þeirra hafa í laun.
Þá segja starfsmennirnir að þeim sé stillt upp við vegg. Ef þeir skrifi ekki undir nýja samninginn verði þeir reknir og aðrir sem ekki þekkja aðstæður ráðnir í staðinn.
Þá segja Íslendingarnir að þeir hafi ekki vitað að Shipping.fo væri starfsmannaleiga heldur töldu þeir sig vera ráðna í gegnum Smyril Line, útgerð skipsins.
Eins segja þeir að upplýsingar um laun hafi verið settar fram á misvísandi hátt. Mánaðarlaun voru tilgreind en ekki sú staðreynd að frívíkur sem almennt eru borgaðar séu launalausar og laun séu því aðeins greidd að fullu annan hvorn mánuð. (Fyrirkomulagið hefur hingað til verið þannig að fólk hefur unnið sér inn einn frídag fyrir hvern unnin dag. S.s. fyrir hvern unninn mánuð hefur fólk unnið sér inn einn mánuð á launum í fríi.)
Starfsmennirnir segja að þeir hafi komið um borð án þess að sjá þessa nýju samninga. Reyndir starfsmenn hafi unnið í allt að einn mánuð í þeirri trú að eldri samningur gilti.
Þegar fimm dagar höfðu liðið frá útborgunardegi og laun voru hvergi sjáanleg voru haldnir fundir til að upplýsa okkur öll um nýja samninginn. Þessir fundir upplýstu okkur um fátt og fengum við ekki einu sinni að sjá nýja samninginn í endanlegri mynd.
Þá kemur fram í bréfinu að trúnaðarmanni frá Færeyska fiskimannafélaginu hafi verið neitað um setu á þessum fundum þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir íslensku starfsmannanna.
Persónulega finnst okkur að Smyril Line í samstarfi við Shipping.fo séu að nýta sér efnahagsástand Íslendinga, þar sem atvinnuleysi er um 9% og mörgum vantar enn vinnu. Við viljum gjarnan koma þessum skilaboðum áfram til þjóðarinnar og ef ekki verður spyrnt við fótum nú munu aðrir sjá sér gott færi og fúlgu fjár að græða á neyð okkar Íslendinga, segir orðrétt í bréfi Íslendinganna um borð í Norrænu.///maður er ekki að mæla þessu bót als ekki!! en ef þetta er rétt að islendingarnir hefði ekki fengið vinnuna annars er þetta kannski verjandi,það að hafa vinnu er fyrir öllu ein og sakir standa,.að er svo að þetta hefur vikgengis her a´Íslandi lengi Konur margar í sömu störfum og kallar hafa lægri laun!! svona var þetta á >Keflavikurflugvelli þar unnu erlendir menn á launum síns lands og víða og víðar ,en þetta er kanni ekki til að gera rétt þar er annað mal,en vilja menn heldur missa vinnuna en halda henni ef nógir eru um störfin,en það var ekki rétt staðið að þessu það er alveg kristaltært,en þetta er bara svona og við eigum að ganga frá svona samningum fyrirfram/Halli gamli
Mótmæla lægra kaupi Íslendinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.