Nýfallinn snjór í Esjunni/það er vetrarlegt og verður til miðvikudags!!!!

Nýfallinn snjór í Esjunni
Innlent | mbl.is | 19.5.2011 | 22:09

Nýfallinn snjór er í Esjunni í dag, 19. maí. Nýfallinn snjór er í Esjunni í dag, 19.maí. Heldur kuldalegt er því um að lítast í höfuðborginni og víðar á landinu, því norðanlands snjóaði á fjallvegum í dag. Útlit er fyrir að kuldatíðin teygi sig yfir lengri tíma, en hápunkturinn verði á laugardaginn.

Veðurstofan spáir næturfrosti í öllum landshlutum um helgina og snjókomu á norðurlandi. Enn eru vegir greiðfærir um allt land, en að sögn veðurfræðings má reikna með talsverðri ofanhríð á fjallvegum norðaustan- og austanlands í kvöld og í nótt. Meira og minna mun snjóa samfellt ofna 200-300 metra, s.s. á Oddskarði, Fjarðarheiði og Vopnafjarðarheiði. Eins er búist við snjómuggu á Mývatns- og Möðrudalsöræfum í kvöld, svo og í Víkurskarði og á Öxnadalsheiði.

Strekkingsvindur er á þessum slóðum og nokkuð blint. Á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum er einnig spáð minniháttar éljum sem valda munu hálku, jafnvel alveg niður undir láglendi í nótt og snemma í fyrramálið. 

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir á bloggi sínu í dag að útlit sé fyrir að þessi kalda tíð teygi sig yfir lengri tíma, eða í það minnsta 4 til 5 sólarhringa. Hámarkið verði ef að líkum lætur á laugardag. Auk þess er best að vera viðbúinn öllu ef marka má Einar, því viðburðir eins og þessir komi oft í lotum og endurtaki sig í tvö og jafnvel þrjú eða fjögur skipti. „Ég er ekki að segja að svo þurfi að verða nú, einfaldlega að lýsa því hvernig veðráttan á það til að haga sér í takt við orðtakið gamalkunnuga að sjaldan sé ein báran stök," segir Einar.///það er einfaldlega kuldalegt bæði veðrið og svo í Stjórmálunum ,geti ekki verið kuldalegar á báðum stöðum,allt i uppnámi ,og það likar Jóhönnu Forsætisraðherra og Steingrímur Fjarmálaráðherra sem Öskruðu á Íhaldi ,eða sjálfstæðið sem þau hata á alþingi i dag,kuldalegar getur það ekki orðið,þetta var maður að hlusta á i frettum og það var bara nóg til að slökkva á þeim,hvílíkt   og annað eins  hefur maður oft áður,þetta er svo bilað fólk að það hálfa væri nóg og svona hættulegt fólk skuli stjórna landinu er ekki gott,enda margir að flýja það!!! en satt maður  á bara ekki fleiri orð um þetta!!!!/Halli gamli


mbl.is Nýfallinn snjór í Esjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband