Allir úti að smala/þetta er harkan sex sem dugar þarna, og vonar maður að allt fari vel!!!

Allir úti að smala
Innlent | mbl.is | 22.5.2011 | 17:19

Bíl ekið á þjóðvegi eitt skammt frá Kirkjubæjarklaustri í morgun. Bændur á Suðurlandi hafa í dag verið önnum kafnir við að sinna lambfé. Björgvin Harðarson, bóndi á Hunkubökkum, var síðdegis að fara með um 200 kindur í fjárhús á annarri jörð. Hann segir kindurnar hræddar, en vonar að þær beri ekki skaða af öskunni sem þær hafa verið í.

Um 800 lömb fæddust í vor á Hunkubökkum og var stór hluti þeirra kominn út þegar eldgosið hófst. Björgvin gat ekkert sinnt því í morgun þegar svart öskuský lagðist yfir svæðið. Upp úr kl 14 í dag fór að rofa til og fór Björgvin þá með fleira fólki að smala og gefa kindunum bæði hey og vatn. Hann segir þetta mikla vinnu, enda er húspláss takmarkað eftir að lömbin eru fædd.

Björgvin sagði að kindurnar virtust hræddar og jörmuðu mikið. Engin lömb hefðu hins vegar drepist og sagðist hann vona að tækist að koma í veg fyrir að þau bæru skaða af öskufallinu.

Svavar Helgason, sem er í svæðisstjórn björgunarsveita á Kirkjubæjarklaustri, sagði að bændur væru á öllum bæjum að sinna búfé. Björgunarsveitarmenn hefðu aðstoðað menn sem þess þyrftu. Hann sagði að tekist hefði að sinna öllum beiðnum um aðstoð við íbúa svæðisins.///það er ekkert annað að gera þar en að takast á við þessar aðstæður þarna sem er ekki góðar ,gæti vart verið verri ,en svona er það engin elsku mamma og bara hella sér í hlutina,hugur okkar allra er með þessu blessaða fólki og fénaði   og biðjum þeim blessunar og vonandi að þessu fari að linna ,en það svo að það veit engin ,og þessa vegna er þetta svo átakanlegt allt!!!/Halli gamli


mbl.is Allir úti að smala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband