10.6.2011 | 12:07
Uppgjör við hrunið/ hvers vegna er þessi maður ekki bara látin stjórna landinu????
verð að segja um þetta erindi Þorvaldar Gylfasonar!!!! sem maður tekur uppúr VÍSIR= Þannig að manni bara blöskra,ef ekki það af hverju er ekki kall bara látin taka við og stjórna þessu öllu,ef satt væri!!!!!!/////////Enn vantar mikið á hreinskiptið uppgjör við hrunið, þótt ýmislegt hafi áunnizt. Brennuvargar gera hróp að slökkviliðinu, segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum utanríkisráðherra, um ástandið í grein á vefnum, og má til sanns vegar færa. Sumt gengur þó vel. Fjármálaeftirlitið (FME) hefur undir styrkri stjórn Gunnars Þ. Andersen sent 67 mál til sérstaks saksóknara. Starfsmönnum sérstaks saksóknara hefur fjölgað úr þrem hálfu ári eftir hrun í 70 nú, bráðum 80. Þetta heitir að láta hendur standa fram úr ermum. Tilraunir Seðlabankans til að sölsa FME undir sig ber að skoða í þessu ljósi. Það væri óhyggilegt að hrófla við FME eins og sakir standa.
Að búa um óhrein sár
Málin, sem FME hefur sent frá sér til sérstaks saksóknara, snerta á annað hundrað manna. FME sendir ekki frá sér önnur mál en þau, sem það telur líkleg til að leiða til sakfellingar. Meintar sakir mega helzt ekki fyrnast, áður en dómstólar ná að kveða upp dóma. Alþingi þyrfti að setja lög til að fresta fyrningu hugsanlegra brota í þeim málum, sem ekki hafa enn verið sett í rannsókn, svo sem einkavæðing bankanna og ýmis mál tengd sparisjóðunum, en þingmenn virðast þó ekki hafa hug á því. Hugsanleg sök ráðherra vegna einkavæðingar bankanna 2002 er löngu fyrnd samkvæmt lögum um ráðherraábyrgð, en hugsanleg sök ráðherra og embættismanna, til dæmis vegna auðgunarbrota, innherjasvika eða umboðssvika, fyrnist á tíu árum. Enn er lag.
Mættu þeir ráða, myndu vinir hrunsins trúlega sópa öllu saman undir teppi, svo sem lýsing Jóns Baldvins á brennuvörgunum ýjar að. Þess vegna er ástæða til að varast fyrningu brota vegna tafa í framgangi réttvísinnar. Annað eins hefur gerzt í okkar samfélagi. Í einu mesta fjársvikamáli lýðveldissögunnar var Vilhjálmur Þór seðlabankastjóri fundinn sekur í Hæstarétti fyrir hálfri öld, en sök hans var fyrnd. Saga olíumálsins og þáttar Vilhjálms Þór í því má ekki endurtaka sig. Undanbragðalaust uppgjör olíumálsins á sinni tíð hefði trúlega dregið úr viðgangi þeirrar spillingar, sem ásamt öðru lagði Ísland á hliðina 2008. Aldrei gefst vel að búa um óhrein sár.
Mesta fjármálahrun allra tíma
Fjármálahrun Íslands er á ýmsa viðtekna kvarða mesta hrun, sem mælzt hefur. Hér á ég ekki við kerfishrun eins og fall Sovétríkjanna, heldur fjármálahrun. Í fyrsta lagi nam fjártjónið, sem bankarnir íslenzku lögðu á hluthafa, lánardrottna og viðskiptavini utan lands og innan, um sjöfaldri landsframleiðslu Íslands, sem er heimsmet. Í annan stað kæmist gjaldþrot bankanna þriggja Glitnis, Kaupþings og Landsbankans á listann yfir tíu mestu gjaldþrot Bandaríkjanna, hefðu þeir verið bandarískir bankar. Séu bankarnir þrír skoðaðir sem ein heild, er gjaldþrot þeirra samkvæmt samantekt FME þriðja mesta gjaldþrot sögunnar á bandarískan kvarða, næst á eftir gjaldþrotum fjármálafyrirtækjanna Lehman Brothers og Washington Mutual. Í þriðja lagi nam kostnaður ríkisins, það er að segja skattgreiðenda, við að hreinsa til eftir bankahrunið hér heima 64 prósentum af landsframleiðslu. Fyrra heimsmet átti Indónesía eftir fjármálakreppuna þar 1997-98, eða 53 prósent samkvæmt upplýsingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Hvergi á byggðu bóli hefur hlutabréfamarkaður þurrkazt út nema hér.
Landsframleiðsla og atvinna hafa ekki minnkað meira hér heima en raun varð á einkum vegna þess, að AGS og Norðurlönd komu til bjargar og lögðu á ráðin um skynsamlega endurreisnaráætlun með aðhaldi í ríkisbúskapnum og tímabundnum gjaldeyrishöftum til að firra krónuna frekara gengisfalli, og féll gengi krónunnar þó um helming í kringum hrunið. Við bætist, að hluti fjárins, sem útlendingar töpuðu á viðskiptum við bankana, skilaði sér hingað heim og birtist meðal annars í hálfreistum húsum, til dæmis Hörpu. Þetta skilja útlendingar. Þess vegna meðal annars hrundi orðspor Íslands. Írar fóru öðruvísi að. Þar er atvinnuleysið meira en hér og orðstírinn betri út á við, því að Írar reyna með erfiðismunum að standa skil á erlendum skuldbindingum sínum. Sá kostur stóð Íslandi ekki til boða, þar eð hrunið hér olli tjóni, sem ekki var vinnandi vegur að bæta.
Rolex-vísitalan
Hagsaga Íslands er sneisafull af dæmum um höft og skömmtun og viðleitni fólks og fyrirtækja til að fara í kringum slík boð og bönn, stundum í blóra við lög. Frívæðing viðskipta eftir 1960 og fjármagnsflutninga eftir 1990 spratt af langri reynslu af niðurdrepandi haftabúskap. Höft og skömmtun skekkja og skaða grundvöll efnahagslífsins og spilla viðskiptasiðferði og smám saman einnig öðru siðferði, einkum þegar höftin verða langvinnari en brýn nauðsyn krefur. Rolex-vísitalan fjöldi seldra dýrra armbandsúra á mann er sögð há á Íslandi. Það stafar þó ekki aðeins af því, að efnamönnum vegnar vel, heldur einnig af hinu, að venjulegt fólk hefur ekki aðgang að erlendum gjaldeyri umfram 350.000 krónur á mánuði til ferðalaga og naumar úttektarheimildir með krítarkortum. Af því sprettur þörfin fyrir að kaupa dýr úr til endursölu með afföllum erlendis. Einmitt þannig var ástandið fyrir 1960. Þessu þarf að linna sem fyrst.
///////Eftir þennan lestur er maður ekki hissa á að þessi maur skuli vera á launum Háskólans eða hitt þá heldur ekki!!! þetta er svo gott að standa á hliðarlínu og segja hlutina,samber maður sjálfur,þessi maður er ekkert meiri en það að þarna er svo mikið bull að það hálfa væri nóg,ekki vildi ég hafðan i forsvari,en þið veriðið að fyrirgefa það/Halli Gamli
Til baka
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 1046584
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.