Breytingatillaga við breytingatillögu/ Það á ekki af þessum byltigasinnum að ganga,eyðileggja er þeirra mottó!!!!!!

Breytingatillaga við breytingatillögu
Innlent | mbl.is | 11.6.2011 | 17:56

Steingrímur J. Sigfússon í ræðustóli á Alþingi. Myndin er úr safni. Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, mælti nú síðdegis fyrir breytingatillögu við breytingatillögu á frumvarpi um stjórn fiskveiða, svonefndu „litla kvótafrumvarpi“.

Meðflutningsmenn Lilju Rafneyjar eru Ólína Þorvarðardóttir, Björn Valur Gíslason, Róbert Marshall og Helgi Hjörvar. Annarri umræðu um  frumvarpið var haldið áfram á 153. fundi Alþingis sem hófst klukkan 16.30. Fundinum hafði þá verið frestað aftur og aftur.

Stjórnarandstæðingar gagnrýndu frumvarpið mjög. Pétur Blöndal taldi það vera til bóta að ýmislegt hafi verið fellt úr upphaflegu frumvarpi því frumvarpið sé slæmt og best að hafa sem minnst af af því.

„Ég boða hér með mjög harða andstöðu við frekari áform af þessum toga,“ sagði Bjarni Benediktsson, alþingismaður og formaður Sjálfstæðisflokksins með þunga. Hann sagði að 9 af hverjum 10 kílóum af kvóta sem nú eigi að hræra í séu úti á landi. Það eigi bara að hræra í þessu frá einum stað til annars. 

Frumvarpið gangi út á meiri miðstýringu og minni hagkvæmni. Hann sagði allt of langt gengið í frumvarpinu.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, lýsti ánægju sinni yfir því að vel horfði með afgreiðslu frumvarpsins. Hann kvaðst líta svo á að allir stjórnmálaflokkar og sjávarútvegurinn standi frammi fyrir þeirri áskorun að reyna að leiða þessi mál til farsællar niðurstöðu.

Hann minnti á að allir viðurkenni að gera verði breytingar á kvótakerfinu eins og það hefur verið. Steingrímur taldi það ágætan áfanga að ná því að afgreiða frumvarpið. 

Atkvæðagreiðslu var frestað eftir 2. umræðu lauk. ///////// er þetta planið að eyðileggja fiskveiðikerfið áður en Alþingi líkur!!!! ef þetta tekst er bara  komið stríð og ekkert stoppar það!!!það er einmitt það sem meirihluti vill??? eða er hann það??? en þessi þrái er  búin að setja allt á annan endann og mun gera það,ekki síst ef flotinn siglir í land,hver er leiðin þá,fiska bara á smábáta???Manni finnst sjálfum það bara sjálfsagt/Halli Gamli


mbl.is Breytingatillaga við breytingatillögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband