Steingrímur á Ölstofunni - einkabíl­stjórinn beið fyrir utan/þetta kemur úr fugalahvísli!AMX!!!

Smáfuglarnir voru staddir á Ölstofunni fyrir nokkru og þegar þeir komu að staðnum var þar fyrir utan stífbónaður ráðherrabíll af stærstu gerð. Bílnum var lagt fyrir utan staðinn og sat bílstjóri í bílnum og beið. Smáfuglarnir vissu ekki hver ætti bílinn en voru ekki lengi að átta sig á því.

Gestir ölstofunnar tóku mynd af Steingrími sem sat að sumbli á meðan ráðherrabíllinn beið fyrir utan.

Þegar inn var komið stóð við barinn eini Íslendingurinn sem komið hefur í gegn pólitískum réttarhöldum yfir pólitískum andstæðingi sínum, Steingrímur J. Sigfússon. Smáfuglarnir heyrðu strax í gestum staðarins sem sögðu að ráðherrabíllinn hefði beðið lengi fyrir utan.

Það var þá. Kommúnistinn sem gagnrýnt hefur ráðherrabílana manna hæst í gegnum árin, hann stóð þá við bar í Reykjavík á meðan einkabílstjórinn beið fyrir utan á ríkisbílnum!

Smáfuglarnir velta fyrir sér hver munurinn sé að fara í laxveiði á kostnað ríkisbanka eða fara á knæpu á kostnað fjármálaráðuneytisins? Hvað mun ríkisendurskoðun segja um notkun ráðherrans á bíl og einkabílstjóra til þess að keyra sig á milli öldurhúsa? Hvað segir skattstjóri um þau hlunnindi - eða þá faðir hlunnindaskattsins og starfsmaður Steingríms, Indriði Þorláksson?///////Maður varð að stela þessu úr fuglahvísli AMX !!!! ,ef þetta er satt sem er ekkert líklegt er kallinn  bara mannlegur að tala við fólk á ölstofum og það gott,en eyðir bíllinn ekki bensíni eða olíu/Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband