Innlent | mbl.is | 5.7.2011 | 14:33
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ítrekaði í dag stuðning Íslendinga við réttindi Palestínumanna, þar á meðal við sjáfstætt ríki Palestínu innan landamæranna fyrir sex daga stríðið svonefnda árið 1967.
Opinbera fréttastofan Petra í Jórdaníu segir að Össur hafi lýst þessu yfir eftir fund með Mohammad Sbeih, aðstoðarframkvæmdastjóra Arababandalagsins, í Kaíró í Egyptalandi í dag. Til stóð að Össur færi til Gasasvæðisins síðdegis og á fimmtudaginn fari hann til Ramallah á Vesturbakkanum.
Petra segir, að í viðræðunum í dag hafi Össur sagt að Ísland styðji að ríki Palestínumanna verði viðurkennt. Þá hafi hann lagt áherslu á einingu Palestínumanna og hvatt samtökin Hamas og Fatah að bæta samskiptin svo hægt verði að framfylgja nýgerðu samkomulagi milli samtakanna og mynda nýja ríkisstjórn Palestínumanna, sem geti tekist á við aðsteðjandi vandamál.
Össur hvatti einnig til þess, að Ísraelsmenn aflétti hafnbanni, sem þeir hafa sett á Gasasvæðið. Sagðist hann ætla að heimsækja Gasa og ræða við palestínska embættismenn um hvernig Ísland geti stutt palestínsku þjóðina.
Haft er eftir Sbeih, að hann hafi rætt við Össur um áform Araba og Palestínumanna um að sækja um fulla aðild ríkis Palestínumanna að Sameinuðu þjóðunum.
Hann sagði, að Arababandalagið sé að reyna að afla stuðnings við að ríki Palestínumanna hljóti alþjóðlega viðurkenningu. Lagði hann áherslu á, að alþjóðasamfélagið eigi að viðurkenna ríki Palestínumanna með Austur-Jerúsalem sem höfuðborg. ////'ÉG sagði í pistli mínum i gær að þarna mætti kallin taka á og kjafta það gerir hann og það gott þarna ,það er svívirðilegt hvernig Ísraelar kom þarna fram við arabana ,og það er kannski ekki allt í lagi arabamegin heldur, en svo er þetta að sá stóri ,Ísraelar geta vaðið yfir allt og alla,en hinir ekkert verið sig,þetta hafa menn seð i langa tíð en lítill árangur nást,maður eftir mann hefur reynt að kom samkomulagi en engum tekist kannski tekst Össur það!!! en þarna má hann taka til mála og reyna að friðsemja,það væri gott mál/Halli gamli
Lýsti stuðningi við Palestínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Styð Össur í þessu
Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.7.2011 kl. 15:23
Við erum búin að sjá fréttina. Þarf ekki að endurtaka það.
Ólöf Björg (IP-tala skráð) 5.7.2011 kl. 15:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.