Óvæntur endir á Íslandsferð/Svona er þetta menn landa í ýmsu óvæntu!!!!

 

 Óvæntur endir á Íslandsferð
Innlent | mbl.is | 9.7.2011 | 13:27

Þyrlan settist á veginn og flutti Frakkana til byggða. Íslandsferð hóps Frakka, sem dvalið hefur hér á landi undanfarinn hálfa mánuð, tók óvænta stefnu í morgun en hópurinn hafði næturstað nálægt Hafursey austan við Múlakvísl.

 

„Það var allt með felldu þegar við fórum að sofa í gærkvöldi og það var lítið í ánni. Við fundum að vísu einkennilega lykt en veltum því ekki sérstaklega fyrir okkur," sagði Marc Audreno, annar fararstjóri hópsins við mbl.is.

„Í morgun þegar við ætluðum að fá okkur morgunmat kom vörður til okkar og sagði að vegurinn væri farinn og við kæmumst ekki vesturyfir."

Audreno sagði að hópurinn hefði tekið saman föggur sínar og í þann mund kom þyrla Landhelgisgæslunnar og settist á veginn en flugmennirnir höfðu séð til Frakkanna. Ákveðið var að flytja þá til Víkur í tveimur ferðum og voru þeir í fjöldahjálparstöð Rauða krossins þar þegar mbl.is ræddi við þá. Þeir urðu að skilja bíla sína eftir austan við Múlakvísl en von var á bíl úr Reykjavík til að sækja þá.

Audreno og Vidian Delabrosse, hinn fararstjórinn, eru þaulvanir Íslandsferðum. Þeir sögðu, að ferðamennirnir hefðu ekki kippt sér sérstaklega upp við þessa lífsreynslu enda vissu þeir að búast mætti við hverju sem er á Íslandi. Þetta hefði í raun verið punkturinn yfir iið í ferðinni. Menn vissu einnig, að Íslendingar væru þaulvanir að fást við þær aðstæður sem gætu komið upp.

Hópurinn er hér í hálendisferð á vegum fyrirtækisins 66° Nord í Frakklandi. Farið var yfir Kjöl til Mývatns og síðan stóð til að fara Sprengisandsleið til baka en hún reyndist ekki fær. Frakkarnir halda heim á morgun.  

 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ætlar síðdegis í dag austur að Múlakvísl ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra. 

mblfrettir profile

mblfrettir Fjallabaksleiðirnar eru opnar en eru eingöngu færar jeppum og stærri bílum. Fólk er hvatt til að fara frekar Fjallabaksleið nyrðri. ///////svo getur þetta skeð og það gott að menn eru ekki hræddir,en það er skemmtilegur endir a´góðri ferð hjá þessum Frökkum, en gott að þeir fengi g hjálp og það snöggt,svona er þetta allt i bestu getu okkar björgunarmana,svo ætlar Ögmundur innan ríkisráherra sem var fyrir vestan að fara og skoða aðstæður með vegamalastjóra,og það gott dugleaur maður Ögmundur það vantar ekki!!!/Halli gamli


mbl.is Óvæntur endir á Íslandsferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband