Ráðin forstjóri VÍS/ til hamingju með það :með von um góðan rekstur!!!!!!

Ráðin forstjóri VÍS
Viðskipti | mbl.is | 2.8.2011 | 16:45

Sigrún Ragna Ólafsdóttir Stjórn Vátryggingafélags Íslands hefur gengið frá ráðningu Sigrúnar Rögnu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs hjá Íslandsbanka, í starf forstjóra VÍS og Lífís.

Sigrún Ragna hóf störf hjá Íslandsbanka við stofnun hans í október 2008 er hún var ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs og tók sæti í framkvæmdastjórn. Sigrún starfaði hjá Glitni Banka frá því síðla árs 2007 þar sem hún leiddi fjárhagssvið bankans.

Hún starfaði um árabil hjá Deloitte hf. þar sem hún var meðal annars stjórnarformaður og einn eigenda. Sigrún Ragna er með víðtæka stjórnunar- og sérfræðireynslu og hefur unnið með fyrirtækjum úr flestum atvinnugreinum. Hún mun hefja störf hjá VÍS 1. september næstkomandi.

„Við erum mjög ánægð með að hafa fengið Sigrúnu Rögnu til liðs við okkur og hlökkum til samstarfsins við hana. Hún hefur umfangsmikla reynslu á íslenskum fjármálamarkaði og mun koma inn í öflugan hóp stjórnenda félagsins“ segir Axel Gíslason, stjórnarformaður VÍS, í tilkynningu.

Sigrún Ragna er 47 ára gömul, gift Eiríki Jónssyni, skrifstofustjóra hjá Endurvinnslunni hf. og eiga þau tvo drengi. Hún lauk cand.oecon prófi af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands árið 1987 og löggildingu sem endurskoðandi árið 1990. Sigrún lauk MBA prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007.///////Maður er að vonum ánægður að kona kemur þarn  til hamingju með það ,það hefur gengið mikið á þarna i þessu fyrirtæki og ekki allt gott því miður lenti það i vondum málum eins og fleiri i kreppunni og þarna varð fjármagnstap og jafnvel þjófnaður?? eða spilling en það að þetta fyrirtæki sem maður hefur tryggt hjá alla tíð,var áður samvinnutryggingar,en var þeim sjóðum bara stolið nefni engin nöfn en við sem þar tryggðum áttum að fá bætt en allt fór í vasa einhverra??? en svo þetta með að hafa ráðið  þarna konu er vonandi afbragð ,og vonum við að hún reki þetta vel og rétt,og bara til hamingju vístryggjendur,,einnig hún sjálf með stöðuna,samt fannst manni skrítið að fyrverandi forstjóri skuli vera stjórnarformaður,en kannski bara fínt??? /Halli gamli


mbl.is Ráðin forstjóri VÍS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband