Mikil lækkun á Wall Street/ Þetta er ógnvænlegt,og ekkert að linna!!!!

Mikil lækkun á Wall Street
Viðskipti | AFP | 10.8.2011 | 20:07

Miðlarar í kauphöllinni í New York í dagBandaríska hlutabréfavísitölur fylgdu þeim evrópsku eftir í mikilli lækkun í dag. Dow Jones hlutabréfavísitalan lækkaði um 4,63%, S&P 500 lækkaði um 4,42% og Nasdaq lækkaði um 4,09%.

Í Evrópu lækkaði Euro Stoxx 50 vísitalan um 6,12%, FTSE vísitalan í Lundúnum lækkaði um 3,05%, í París lækkaði CAC vísitalan um 5,45% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 5,13%.

Á Spáni lækkaði Ibex vísitalan um 5,49% og á Ítalíu lækkaði FTSE Mib vísitalan um 6,65%.

Víða voru það hlutabréf banka sem lækkuðu mest og má nefna að um tíma í dag lækkuðu hlutabréf franska bankans Societe Generale um rúm 20%. Við lokun nam lækkunin tæpum 15%. 

Er fallið í dag meðal annars rakið til orðróms um að lánshæfiseinkunn Frakklands yrði lækkuð og virtist engu skipta að bæði franska ríkið og lánshæfismatsfyrirtækin sögðu orðróminn rangan. 

Helstu matsfyrirtækin þrjú, Moody's, Standard & Poor's og Fitch, tilkynntu öll í dag að engin breyting yrði gerð á lánshæfiseinkunn franska ríkisins, hún væri enn AAA.

///// við öll óttumst þetta ástand ekki spurning!! og það er að  verða svo víðtækt ,og að mans mati óstöðvandi,það legst þannig í alla að þetta verði bara alherjar kreppa,eins og við lesum hérna er það á góðri leið og búist við því vesta///Halli Gamli


mbl.is Mikil lækkun á Wall Street
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband