Erum miður okkar /er það nema von !!! allt gert til að eyðileggja byggðir landsins !!!!

Erum miður okkar
Innlent | mbl | 17.10.2011 | 17:26
Bergur Elías Ágústsson.„Við erum vitanlega miður okkar," sagði Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, eftir fund bæjarráðs og hans með Tómasi Sigurðssyni, forstjóra Alcoa á Íslandi. 
fundinum tilkynnti Tómas, að Alcoa væri hætt við að reisa og reka álver á Bakka við Húsavík.

Undirbúningur þessa verkefnis, að Alcoa reisti og ræki álver á Bakka hefur staðið í rúm sex ár og þegar upp er staðið liggur fyrir að Alcoa stendur ekki til boða nægilegt magn raforku, sem nauðsynlegt er til þess að knýja 250 þúsund tonna álver, eins og ráð hafði verið fyrir gert og ekki heldur það verð, sem er ásættanlegt til þess að fyrirtækið réðist í slíka fjárfestingu,“ sagði Bergur Elías.

Aðspurður hvort ákvörðun Alcoa kæmi heimamönnum í opna skjöldu sagði Bergur Elías: „Menn hafa lagt gríðarlega mikla vinnu á sig í mörg ár og hún hefur verið mörg brött brekkan sem við höfum þurft að fara upp. Maður getur kannski lítið gert, annað en lýsa yfir vonbrigðum með þessa niðurstöðu, en þó verður það að segjast eins og er, að hún er í takt við þær nýju áherslur sem ítrekað hafa komið fram hjá stjórnvöldum og Landsvirkjun á undanförnum misserum og kemur okkur þannig séð ekki á óvart.“ ///það segir sig sjálft að V.G. og samfylking er að koma landsbyggðinni fyrir kattarnef ekki spurning ,þetta er komið í það og löngu áætlað af þeim/Halli gamli


mbl.is Erum miður okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Það eru frábærar fréttir að búið sé að slá þetta rugl út af borðinu. Ekki fleiri álver takk!!

Guðmundur Pétursson, 17.10.2011 kl. 18:16

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Er þetta svona einfalt Halli? Það má klína öllum skömmum á ríkisstjórnina en er það ekki eins og hver önnur heimska?

Tek undir aths. Guðmundar. Ekki fleiri álbræðslur takk. Nú er komið að vatnaskilum!

Sjá nánar sjónarmiðin þar sem eg dreg saman helstu staðreyndir sem eru að baki ákörðunar þeirra Alkóamanna: http://mosi.blog.is/blog/mosi/entry/1198512/

Góðar stundir!

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 17.10.2011 kl. 18:35

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Við skulum bara spyrja að leikslokum drengir,það er svo að við verðum að gera eitthvað, ekki endilega Álver en eitthvað annað sem gefur okkur tekjur,en þið verðið að viðurkenna að það ber að gera sem fyrst,annars fer illa,þessi ríkisstjórn dregur lappir i ESB viðræðum sem er tilganglaust/en ekki að koma okkur aftur i framtíð,sem er hagvöxtur/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 17.10.2011 kl. 20:49

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ég gleymdi því að þetta heimskra manna tal ,er bara rökþrot að mínu mati!!!Kveðja

Haraldur Haraldsson, 17.10.2011 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband