19.10.2011 | 20:31
Wenger ekki vinsæll í Marseille/en réttlætið sigraði og það fyrir mestu!!!!!
Íþróttir | mbl.is | 19.10.2011 | 13:22
Þegar Frakkinn Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, stígur inn á Stade Velodrome leikvanginn í frönsku hafnarborginni Marseille í kvöld má hann búast við frekar köldum kveðjum frá stuðningsmönnum heimaliðsins.
Marseille tekur á móti Arsenal í Meistaradeild Evrópu klukkan 18.45.
Arsene Wenger var á árunum í kringum 1990 við stjórnvölinn hjá Mónakó sem barðist við Marseille um franska meistaratitilinn. Hann var oft ómyrkur í máli í garð Marseille og sagði m.a. á sínum tíma að forráðamenn félagsins beittu óheiðarlegum aðferðum til að ná árangri.
Það kom síðan á daginn að Wenger hafði rétt fyrir sér. Forráðamenn Marseille voru fundnir sekir um mútur, félagið var svipt franska meistaratitlinum, sem það hafði unnið fimm ár í röð, og var dæmt niður í 2. deild til tveggja ára, eftir að það varð Evrópumeistari vorið 1993.
Bernard Tapie, þáverandi forseti Marseille, var jafnframt dæmdur í bann fyrir að múta leikmönnum Valenciennes til að taka því rólega í leik gegn liðinu og hefur ekki haft afskipti af fótbolta síðan. Stjórnarmaðurinn Jean-Pierre Bernes fékk 18 mánaða bann. Svo vill til að hann er núna umboðsmaður Samirs Nasri, og hefur væntanlega ekki leiðst að ná honum burt frá Arsenal í sumar og koma honum til Manchester City.
Wenger sagði að óheiðarleiki Marseille hefði kostað sitt félag meistaratitla. Þetta var mjög erfitt því við áttum í höggi við menn sem beittu vafasömum aðferðum. Það er ekki hægt að samþykkja svindl því það drepur íþróttina - rétt eins og það drap hnefaleikana. Ég er viss um að ef aðstæður hefðu verið eðlilegar, hefðum við unnið titla á þessum árum og það er dapurlegt að Mónakó skuli ekki eiga möguleika á að hljóta þá," sagði Wenger á sínum tíma.
Marseille jafnaði sig ekki fyllilega eftir þetta stóra áfall fyrr en félagið varð meistari á ný vorið 2010.
Stuðningsmenn Marseille eru ekki hrifnir af Wenger frá fornu fari, telja hann að talsverðu leyti ábyrgan fyrir því hver örlög liðs þeirra urðu 1993, og hann stígur því inní hálfgerða ljónagryfju í kvöld.///Gaman fyrir okkur stuðningsmen og eins andstæðinga, að lesa þetta og það er það sem þarf að hafa heiðarleikan ,að fyrirrúmi þarna er það ekki?? það er svo að það er númer eitt í íþróttini að,m hafa það,og þer er Wenger á heimavelli og það gott,við viljum hafa það öll /Halli gamli
Wenger ekki vinsæll í Marseille | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Íþróttir
- Barcelona glutraði niður tveggja marka forystu
- Stórleikurinn olli vonbrigðum
- Hef aldrei upplifað annað eins
- Diljá skoraði þegar Leuven komst á toppinn
- Meistararnir niðurlægðir á heimavelli (myndskeið)
- Stórleikur Ómars dugði ekki til
- Sveindís kom af bekknum og skoraði tvö
- Fjögurra marka veisla í Birmingham (myndskeið)
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.