21.10.2011 | 21:56
Mun klára aðildarviðræðurnar/sem við' vorum kosin til ??
Innlent | mbl.is | 21.10.2011 | 17:23
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í setningarræðu sinni á landsfundi Samfylkingarinnar nú síðdegis, að ríkisstjórnin muni klára aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið.
Hún sagði að Íslendingar hefðu alla möguleika á að sækja fram og hefja kraftmikla lífskjarasókn, ekki síst ef það tækist að ljúka aðildarviðræðunum á tilskildum tíma og þjóðin yrði
Ungir jafnaðarmenn héldu minningarathöfn í upphafi landsfundarins um þá sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum í Úteyju og Ósló í sumar. mbl.is/Golli
Tilraunir ESB-andstæðinga, meðal annars forystu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hafa blessunarlega mistekist, að stöðva viðræðurnar áður en niðurstöður þeirra liggja fyrir. Vaxandi meirihluti þjóðarinnar vill klára viðræðurnar og sjá hvað í samningi gæti falist og hafnar því að fulltrúar flokkanna taki þann lýðræðislega rétt af þjóðinni," sagði Jóhanna.
Hvorki Sjálfstæðisflokkur né Framsóknarflokkur stjórntækur
Hún fjallaði talsvert um stjórnarandstöðuflokkana tvo og sagði m.a. að stefna þeirra ætti ekkert erindi við íslensku þjóðina lengur. Sagði Jóhanna að það hefði verið hugmyndafræði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um hinn frjálsa, hagkvæma markað, sem átti að leysa málin ef eignagleðin fengi að ráða för, laus við óþarfa eftirlit og hömlur í nafni almannahagsmuna.
Það var eignagleðin, eins og leiðtogi sjálfstæðismanna til 14 ára kaus að kalla græðgina, sem olli hruninu," sagði Jóhanna.
Hún sagði að hvorki Sjálfstæðisflokkur né Framsóknarflokkur væru stjórntækir fyrr en þeir viðurkenndu ábyrgð sína, gerðu upp við hrunið og breyttu um stefnu í þeim grundvallarmálum sem hruninu ollu.
Enn hefur ekkert uppgjör farið fram, en báðir flokkar og þau hagsmunaöfl sem að þeim standa leggja nótt við dag um að sannfæra þjóðina um að afleiðingar hrunsins megi skrifa á reikninga núverandi ríkisstjórnar," sagði Jóhanna.
Aukinn jöfnuður bætir heilsu
Þá sagði Jóhanna að með auknum jöfnuði ykist traust og samstaða fólks í samfélaginu.
Glæpum mun fækka, streita mun minnka, geðsjúkdómar, hjartasjúkdómar, vímuefnaneysla, næringarvandamál og fleiri þekkt einkenni velmegunarsamfélags munu minnka samhliða auknum jöfnuði. Það munu niðurstöður Richards Wilkinsons sýna okkur fram á hér á landsfundinum," sagði Jóhanna.
Efnahagsleg og samfélagsleg nauðsyn
Jóhanna sagði að ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og VG markaði ekki aðeins söguleg þáttaskil heldur hefði árangur hennar sýnt að hún hefði verið efnahagsleg og söguleg nauðsyn.
Þrátt fyrir ýmsar erfiðar uppákomur og þrátt fyrir að kvarnast hafi úr meirihlutanum vegna brotthvarfs úr þingflokki samstarfsflokksins hefur samstarfið gengið vel og það hefur verið ótrúlega árangursríkt," sagði hún.///það er svo að þessi orð eru svolítið misskilin að mínu mati hjá Formanninum Jóhönnu,sem við vorum kosin til,þetta er ekki svona að það sé hægt að alhæfa ,einnig þar fyrir utan hefir margt breyst siðanna svo maður segi eins og er,annað sem fyrir þessum Landfundi liggur er að verja niðurskurðinn í heilsugeiranum sem er viðbjóður og ómannlegur mjög sínir i reynd anda þessa flokks,og samflokksin ,allar þessar tölur hennar um allt gott sem hefur skeð er hægt að minka um 80% eða svo kannski meira,en það að tala ekki um að þetta sem á öllum brennur atvinnu og framkvæmdir og svo skuldir heimilanna það er vont mal sem ekki eru sögð bara segja að sjálfstæðismenn og framsóknarmenn væru að koma með tillögur eftir 3 ár sem væru tóm vitleysa,á þeirri Grýlu á að komast áfram,en vonandi verður ekki lengur/Halli gamli
Mun klára aðildarviðræðurnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já það er ekki laust við að hroll setji að fólki við að heyra í henni Jóhönnu. Það vantar ekki loforðin um að klára hitt og klára þetta hjá henni á þessum Landsfundi. Hún er ekki í sambandi við Þjóðina ef hún sér ekki að hún er rúin öllu trausti.
Veruleikafyrring og elliglöp eru greinilega farin að hrjá hana vegna þess að hún talar eins og ESB hafi verið eina málið fyrir síðustu kosningar...
Þjóðin á að setja sér það markmið að koma þessu fólki bak við lás og slá vegna þeirra svika sem það hefur haft á borðum fyrir Landsmenn...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 22.10.2011 kl. 08:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.