Milljarður í hagnað hjá Högum/erum við sem þarna verslum að styrkja Arion Banka og erlada eigendur hans????

Milljarður í hagnað hjá Högum
Viðskipti | mbl.is | 28.10.2011 | 17:17
Hagar reka m.a. verslunarkeðjurnar Hagkaup og Bónus.Hagnaður Haga hf. á fyrri hluta rekstarárs félagsins nam 1025 milljónum króna eftir skatta eða 3% af veltu, sem var 33,7 milljarðar króna á tímabilinu. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður félagsins 631 milljón króna og veltan 33,8 milljarðar.ar.

Um er að ræða tímabilið frá mars til loka ágúst. Í tilkynningu frá Högum segir, að á síðasta rekstrarári var verslanakeðjan 10-11 hluti af sex mánaða árshlutareikningi félagsins.  Að teknu tilliti til brotthvarfs á rekstri 10-11 nemur söluaukning félagsins 6,14%. 

Hagnaður félagsins fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta nam 2188 milljónum króna, samanborið við 2416 milljónir króna árið áður.  á fyrri helmingi ársins var fjármagnskostnaður 231 milljónir króna, samanborið við 1.056 milljónir á sama tímabili árið áður.

Í tilkynningunni segir, að horfur í rekstri félagsins séu góðar og rekstur félagsins samkvæmt áætlunum.  Almenn óvissa með efnahagsástand á Íslandi og þróun á ráðstöfunartekjum íslenskra heimila geti þó haft áhrif á rekstur félagsins.   Engar óvæntar eða afgerandi breytingar hafi orðið á rekstri félagsins frá uppgjörsdegi til dagsins í dag.////þetta eru ekki góðar fréttir fyrir okkur sem sjáum þennan hagnað fara út úr landinu,í Vogunarsjóði sem við vitum ekkert hverjir eru en eru erlendir!!!! svei þvi attan!!! þessu að  við skulum bara ekki alveg eins láta bara ríki og Bæ reka þetta og hafa ágóðan!!! frekar  en af áfenginu bara/Halli gamli


mbl.is Milljarður í hagnað hjá Högum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Góður ....

Níels A. Ársælsson., 29.10.2011 kl. 13:01

2 Smámynd: GunniS

jam þetta eru mennirnir sem segjast ekki getað borgað nema lágmarkstaxta. og verslun í landinu hefur aldrei verið rekin með tapi, alltaf milljarða hagnaður hjá þeim. enda hækka þeir bara ef auka kostnaðarliðir koma upp, og við borgum. en tek undir að verslun með matvæli eigi að vera í höndum hins opinbera og hagnaður eigi að renna til samfélagins.

GunniS, 30.10.2011 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband