29.10.2011 | 14:41
Þarf styrk, trú og úthald/það þarf það í þessari afturhaldssemi flokksins,og ekki gera ekki neitt!!!!
Innlent | mbl.is | 29.10.2011 | 14:09
Steingrímur J. Sigfússon formaður VG segir alltaf vonbrigði þegar fólk treysti sér ekki til að halda áfram starfi í flokknum - vísaði þar greinilega til þingmannanna Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur - en sagði styrk, trú og úthald þyrfti til að takast á við erfið verkefni í langan tíma
Höfum sýnt mikinn styrk
Ég tel að þessi flokkur okkar hafi í það heila tekið sýnt mikinn styrk og seiglu í því risavaxna verkefni sem við tókum að okkur fyrir tæpum þremur árum síðan. Þrátt fyrir alla ágjöf og erfiðleika þá erum við þó komin þangað sem við erum komin. Auðvitað hafa þessir tímar reynt á allt og alla í íslensku samfélagi, það hefur ekki síður reynt mikið á sveitarstjórnarfólkið okkar, t.d. þau sem komu ný inn í sveitarstjórnir vorið 2010 og tóku þar á mörgum stöðum við ekkert sérstaklega glæsilegu búi. Það er ekki bara bundið við okkur í stjórn og þingflokki og forystu flokksins að þetta reyni á, það er bundið við okkur öll, ekki síður ykkur hin sem reynið að standa við bakið á okkur og verja framgöngu okkar, oft gagnvart mjög óvæginni umræðu, sagði Steingrímur þegar hann ávarpaði fundinn eftir að hann var endurkjörinn.
Vonbrigði
Mér finnst þegar ég lít yfir þetta í heild sinni höfum við meira og minna sýnt mikinn styrk í þeim efnum. Það eru auðvitað alltaf vonbrigði þegar einhverjir treysta sér ekki til þess að halda samfylgdinni áfram, að halda áfram að vera með í okkar félagslega starfi, en þannig hlutir gerast og kannski enn oftar við svona aðstæður. Því auðvitað þarf styrk, trú og úthald til þess að takast á við svona verkefni misserum og árum saman. En það höfum við sýnt að uppistöðu til, og það skiptir miklu máli, og af sömu ástæðu hef ég tröllatrú á því að við höfum þann styrk sem til þarf til þess að ljúka verkefninu sem við tókum að okkur. Að við klárum þetta kjörtímabil með sóma þannig að fyrsta hreina vinstri stjórnin í sögu íslenskra flokkastjórnmála sitji út kjörtímabil, afsanni kenningarnar um að slíkt gerist helst aldrei, ljúki verkefninu við að koma Íslandi almennilega út úr kreppunni og leggi grunninn að áframhaldi samstarfi umhverfisverndarsinna og félagshyggjufólks í landinu. Ég hef tröllatrú á að þetta verkefni takist.
Steingrímur hlaut yfirgnæfandi meirhluta atkvæða í formannskjöri. Alls kusu 208 manns en 10 atkvæði voru auð. Steingrímur hlaut 152 atkvæði eða 73% gildra atkvæða. Margrét Pétursdóttir hlaut 31 atkvæði eða 15% og Þorvaldur Þorvaldsson hlaut 15 atkvæði eða 7%
Nokkuð afgerandi stuðningur
Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið nokkuð afgerandi stuðning og sterkt umboð frá landsfundi. Sjálfur er ég reyndar þeirrar skoðunar að ég hafi ekki verið sérstaklega góður formaður fyrir þennan flokk, allavega ekki síðustu tæp þrjú ár, í þröngum skilningi þess orðs og þá á ég auðvitað við að annríki undanfarinna missera og önnur störf sem þið hafið vissulega líka falið mér takmarka mjög tíma til þess að sinna hefðbundum skyldum formanns; að rækta samskipti við svæðafélög og grunneiningar í starfinu og vera í nægjanlega góðum tengslum við ykkur öll, sagði Steingrímur, en hét því að þegar um hægðist á öðrum vettvangi myndi hann láta flokkinn og flokksstarfið aftur njóta þess, enda þætti honum einhver skemmtilegasti hluti starfsins, að vera í góðum tengslum við flokksfélaga og byggðarlögin þar sem flokkurinn starfar.
Ég tek þetta að mér með auðmjúkum huga eins og ég hef alltaf gert, reyni að gera mitt allra besta og mun ekki spara krafta mína meira en svo að ég druslist bara lifandi í gegnum þetta, sagði Steingrímur J. Sigfússon.////Það,er mikið að ske þegar þetta landsþing er haldið hja´V.G. sem er að tvístrast!!!! þessi litli flokkur komma sem telur kannski 15% þjóðarinar,en það er nóg að halda sjó með samfylkingu og kalla seig hreina vinstri stjórn,og vera komin i minnihluta og treysta á aðra flökkumenn sem hvergi eiga heima!!!Það er að víssu ekkert alvont við þennan flokk það er margt gott en einnig margt slæmt mjög,við getum ekki komið okkur áfram í hagvöxt ef ekkert er gert,það verður algjör stöðnun,og segja svo að þeir séu með margt i farvatninu en ekkert skeður bara rugl,sem við eigum að trúa/En þetta er okkur gröf sem þeir eru að grafa okkur i og þaðan er erfiðara komast burtu sem lengur liður/Halli gamli
Þarf styrk, trú og úthald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.