Chamakh úr leik hjá Arsenal/en við eigum annan sem betur fer!!!Afram Arsenal !!!!

Chamakh úr leik hjá Arsenal
Íþróttir | mbl.is | 31.10.2011 | 14:11
Marouane Chamakh í leik með Arsenal í Meistaradeidilnni.Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal staðfesti í dag að marokkóski framherjinn Maroune Chamakh hefði meiðst á hné og yrði líklega ekki með liðinu næstu vikurnar.

Hann er sá eini sem dettur út úr hópi Arsenal fyrir leikinn gegn Marseille í Meistaradeild Evrópu annað kvöld en Park Chu-Young kemur væntanlega í hópinn í hans stað.

Wenger staðfesti jafnframt að Thomas Vermaelen væri klár í slaginn annað kvöld. Hann er að komast í gang eftir meiðsli og kom inná sem varamaður undir lok leiksins við Chelsea á laugardaginn.

Þá er Yossi Benayoun líka tilbúinn eftir meiðsli en hann var ekki með gegn Chelsea.

Arsenal er efst í F-riðli Meistaradeildarinnar með 7 stig eftir 1:0 sigur á Marseille í Frakklandi á dögunum. Marseille er með 6 stig, Olympiacos 3 og Borussia Dortmund er með eitt stig. Með sigri annað kvöld væri Arsenal því nánast öruggt með sæti í 16-liða úrslitum keppninnar////það er svo að það þarf að eiga nokkra góða, til að skipast ef meiðsli verða ,það er malið og þarna er Wenger í lagi að hafa nokkra i sömu stöðum annars væri þetta  búið, hin liðin eiga sum mikið fleiri varmenn en við en við, þetta verðum við að búa og það gengur ennþá/Halli gamli


mbl.is Chamakh úr leik hjá Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1046585

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband