Hætta sementsframleiðslu//það er allt á niðurleið!!hvar er uppsveiflan,sem Jóhanna og Steingrímur segja frá???

Hætta sementsframleiðslu Innlent | mbl.is | 23.11.2011 | 9:31 Vegna gríðarlegs samdráttar í sölu sements síðustu ár og mikillar óvissu um stöðu byggingariðnaðarins næstu misseri hefur Sementsverksmiðjan á Akranesi ákveðið að hætta sementsframleiðslu ef aðstæður breytst ekki verulega á næstu tveimur árum. Þetta þýðir að segja verður upp 9 manns. Þess í stað mun verksmiðjan hefja innflutning frá norska framleiðandanum Norcem AS sem er einn eigenda Sementsverksmiðjunnar. Til stendur að flytja sement til hafna á Akranesi og Akureyri, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Stjórnendur Sementsverksmiðjunnar hafa, allt frá efnahagshruninu haustið 2008, gripið til margvíslegra aðgerða og skipulagsbreytinga með það að markmiði að viðhalda sementsframleiðslu í landinu. Þær aðgerðir hafa ekki dugað til og engar vísbendingar eru um verulegan viðsnúning á næstunni. Þýðir uppsagnir hjá verksmiðjunni Ef aðstæður breytast og eftirspurn eftir sementi eykst verulega á næstu misserum munu stjórnendur Sementsverksmiðjunnar endurskoða þessa ákvörðun. Fyrirsjáanlegt er að sementssalan verði um 30 þúsund tonn í ár og verður árið það söluminnsta frá upphafi starfseminnar fyrir 53 árum. Síðustu áratugi hefur verksmiðjan að jafnaði framleitt um 100 þúsund tonn af sementi árlega. Fyrirhugaðar breytingar leiða óhjákvæmilega til fækkunar starfsfólks þar sem framleiðsludeild verksmiðjunnar verður lögð niður ásamt stoðdeildum. Nemur fækkunin nú níu manns. Á þessu ári framleiddi verksmiðjan sement í rúma þrjá mánuði og er allt lagerrými hennar á Akranesi nú fullt. Það hráefni sem verksmiðjan á nú þegar verður notað til sementsframleiðslu snemma á næsta ári og að óbreyttu lýkur þá sementsframleiðslu á Akranesi.////þetta synir okkur meira en nokkuð annað hvað samdráttur er mikill hjá okkar!!! og ekkert gert af henni ríkisstjórn vorri gerir bókstaflega ekkert nema stoppa og aftur stoppa framkvæmdir!! semsagt að sigla okkur i kaf!!!!///Halli GamliSementsverksmiðjan Akranesi
mbl.is Hætta sementsframleiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband