26.11.2011 | 16:41
Hagvöxtur á veikum stoðumu//svo veikum að líf er spurning???
agvöxtur á veikum stoðum Viðskipti | Morgunblaðið | 26.11.2011 | 10:30 Nýbirt hagvaxtarspá Hagstofunnar gefur ekki tilefni til lúðrablásturs og ljóst er að þær forsendur sem spáin byggist á fyrst og fremst kröftug einkaneysla og aukin atvinnuvegafjárfesting eru háðar mikilli óvissu og gætu hæglega breyst til hins verra. Viðmælendur Morgunblaðsins segja spá Hagstofunnar um að atvinnuvegafjárfesting aukist um 19% á næsta ári fullbjartsýna ekki síst sökum þeirrar stöðu sem nú er uppi vegna áforma stjórnvalda um kolefnisskatt sem gæti sett áform um kísilverksmiðju í Helguvík í uppnám. Spáin gerir einnig ráð fyrir framkvæmdum við fyrsta áfanga álvers í Helguvík á árinu 2013 en á þessari stundu er fullkomlega óljóst hvort sú tímasetning gengur eftir. Í hagspá Seðlabankans er til að mynda ekki reiknað með framkvæmdum við Helguvík fyrr en 2014 auk þess sem hvorki Alþýðusamband Íslands (ASÍ) né greiningardeild Arion banka gerir ráð fyrir verkefninu í sínum hagspám. Fjárfesting aldrei minni Það er óumdeilt á meðal hagfræðinga að vöxtur í fjárfestingu og þá fyrst og fremst atvinnuvegafjárfestingu mun skipta höfuðmáli fyrir uppgang efnahagslífsins næstu árin. Fjárfestingarstigið í hagkerfinu hefur aldrei mælst minna á lýðveldistímanum heldur en á síðasta ári, eða aðeins 13% sem hlutfall af landsframleiðslu. Þegar fjárfestingarstigið er jafn lágt og raun ber vitni um þessar mundir á Íslandi, þá mun framkvæmd af slíkri stærðargráðu sem álver í Helguvík er heildarfjárfestingin gæti numið um 250 milljörðum króna hafa umtalsverð áhrif á hagvaxtarhorfur næstu árin. Samhliða gerð kjarasamninga í liðnum maímánuði settu stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins sér það markmið að auka fjárfestingar í 350 milljarða fyrir árslok 2013. Sé hins vegar rýnt í þjóðhagsspá Hagstofunnar má sjá að vöxtur fjárfestinga verður mun minni á tímabilinu en þörf er á, eigi það markmið að nást. Það sama á við um þegar horft er til hagspár ASÍ frá því í október sem gerir fyrir því að fjárfesting ársins 2014 verði aðeins 270 milljarðar króna og vantar því enn 80 milljarða upp á að áformunum verði náð á samningstímanum. Ósjálfbær aukning einkaneyslu? Hagspár greiningaraðila gefa því ekki sérstakt tilefni til þess að vænta mikillar bjartsýni um að vöxtur í atvinnuvegafjárfestingu verði eins öflugur og aðilar vinnumarkaðarins hafa kallað eftir. Af þeim sökum má búast við því, þegar horft er fram í tímann, að þá verði staðan enn slæm sögulega séð hvað varðar hlutfall fjárfestingar og atvinnuleysis. Vöxtur í einkaneyslu er ekki síður mikilvægur drifkraftur hagvaxtar en fjárfesting. Í þjóðhagsspá Hagstofunnar er gert ráð fyrir að einkaneysla muni aukast að meðaltali um 3% á ári fram til ársins 2014 og hún eigi því að standa undir meira en helmingi hagvaxtar næstu þrjú árin. Töluverð aukning hefur orðið í einkaneyslu á síðustu misserum. Þá aukningu má aftur á móti skýra með hliðsjón af tímabundnum úrræðum: eingreiðslum til launþega vegna kjarasamninga, vaxtaendurgreiðslum Landsbankans og úttektum á séreignarsparnaði. Það er því miklum vafa undirorpið hvort sú þróun gefur rétta vísbendingu um að raunverulegur kraftur sé kominn í einkaneyslu. Hættan er sú að þegar hin tímabundna innspýting líður undir lok, samtímis því að það er búist við samdrætti í samneyslu og vöxtur fjárfestinga verður minni en vonir standa til, þá muni það draga verulega úr innlendri eftirspurn í hagkerfinu. Verði það raunin er vandséð hvaða öfl geti dregið hagvaxtarvagninn næstu árin. Fáar en stórar framkvæmdir gætu haft umtalsverð áhrif á efnahagslífið á Íslandi næstu árin. Til að átta sig á mögulegum áhrifum stóriðjuframkvæmda á hagkerfið tók ASÍ nýlega saman þrjú fráviksdæmi ef tækist að auka fjárfestingar umfram það sem gert er ráð fyrir í hagspá samtakanna. Í fráviksdæmunum eru skoðuð áhrifin af framkvæmdum við álver í Helguvík og tengd orkuver og sömuleiðis af byggingu orkuvera við Þeistareyki og í Bjarnarflagi og stóriðju á Norðurlandi. Niðurstaða ASÍ leiðir í ljós að með framkvæmdum við Álver í Helguvík yrði hagvöxtur á árunum 2012-2014 2,3 prósentustigum meiri en í grunnspánni. Væri hins vegar ráðist í stóriðjuframkvæmdir á Norðurlandi yrði hagvöxturinn á sama tímabili 1 prósentustigi meiri en ella. Tækist að ráðast í allar framkvæmdirnar yki það hagvöxt áranna um 3,3 prósentustig, sem myndi þýða að árleg verðmætasköpun yrði 55 milljörðum króna meiri árið 2014.////Ef hægt er að hafa snöruna, áfram um hálsin er þetta leiðinn,en ekkert frakvæmt og ekkert gert til,að koma þessu *i lag erum við bara búinn ekki spurning um það,annað er ekki hægt að sjá!!!!!Halli gamli
Hagvöxtur á veikum stoðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.