Gingrich fær mikilvægan stuðning/ fambærilgegt forsetaefni mjög!!!!!

Gingrich fær mikilvægan stuðning Erlent | AFP | 27.11.2011 | 14:32 Stærsta dagblaðið í New Hampshire lýsti í dag yfir stuðningi við Newt Gingrich sem sækist eftir að verða forsetaefni í Repúblikanaflokknum. Prófkjör fer fram í ríkinu 10. janúar en miklu skiptir hver sigrar þar. Newt Gingrich, er fyrrverandi leiðtogi Repúblikanaflokksins, í fulltrúadeildinni. Kosningabarátta hans fór hægt af stað. Honum gekk illa að safna í kosningasjóð og margir voru á því að hann yrði ekki meðal þeirra sem helst myndu berjast um útnefningu. Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri í Massachuesetts, hefur fram til þessa notið mests fylgis. Um tíma leit út fyrir að Rick Perry, ríkisstjóri í Texas, myndi sópa til sín fylgi en hann kom inn í baráttuna á mikilli siglingu. Hann er hins vegar nánast úr leik núna vegna klaufalegrar framkomu í kappræðum. Herman Cain hefur einnig fengið mikið fylgi í könnunum, en eftir að ásakanir komu fram um að hann hefði áreitt konur þykir ólíklegt að hann sigri. Fylgi við Gingrich hefur verið að vaxa síðustu vikurnar og víst er að stuðningsmenn hans fagna mjög stuðningsyfirlýsingu frá stærsta blaði New-Hampshire. Blaðið segir að Gingrich hafi sýnt leiðtogahæfileika. Hann sé ekki fullkominn frambjóðandi, en blaðið minnir kjósendur líka á að þeir geri oft óraunhæfar kröfur um hvernig frambjóðendur eigi að vera.///það verður hart barist um þetta fraboð ekki spurning en þarna er komin maður sem er traustur og nmaður hefur álti á mjög,og það er að fa´sterkan mann á móti ´<Obama og hans mönnum það þarf að skipta þarba um og fá friðsamari Forseta og það er þesi maður ábyggilega,hann bara gæti unnið//Halli gamliNewt Gingrich.
mbl.is Gingrich fær mikilvægan stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband