105 milljón króna afgangur í Kópavogi///Af hverju á þá að hækka sorphyrðugjald um 30% ???

105 milljón króna afgangur í Kópavogi Innlent | mbl.is | 29.11.2011 | 21:11 Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2012, sem lögð var fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi síðdegis í dag, er gert ráð fyrir 105,6 milljóna króna rekstrarafgangi af samstæðu. Sjö af ellefu bæjarfulltrúum standa að fjárhagsáætluninni eða fulltrúar þeirra fjögurra framboða sem mynda meirihluta í bænum auk fulltrúa Framsóknarflokksins. Í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ segir að í áætluninni sé áfram gert ráð fyrir þéttu aðhaldi í rekstri bæjarins en ekki miklum niðurskurði. „Rekstur bæjarins er samkvæmt áætluninni að styrkjast en framlegð samstæðu er áætluð tæplega 20%. Sem fyrr er lögð áhersla á að standa vörð um grunnþjónustuna, leikskólana, grunnskólana og félagsþjónustuna. Áfram verður unnið að þeim markmiðum sem sett voru við gerð síðustu fjárhagsáætlunar en samkvæmt þeim á að greiða inn á skuldir bæjarsjóðs að minnsta kosti milljarð á ári ánæstu árum og stefna að því að veltufé frá rekstri samstæðu verði að minnsta kosti1,5 milljarðar á ári næstu árin. Í áætlun ársins 2012 verður niðurgreiðsla skulda um 1,4 milljarðar og veltufé frá rekstri samstæðu rúmir 2,4 milljarðar. Gert er ráð fyrir því að tekjur aukist á næsta ári vegna nýgerðra kjarasamninga en að útgjöld aukist mikið að sama skapi vegna samninganna sem og vegna verðbólgu á árinu sem er að líða. Reiknað er með að ýmis álögð gjöld hækki til að standa undir auknum rekstrarkostnaði en að álagningahlutfall fasteignagjalda verði óbreytt.“////Það er einhver Besta og samfó lykt af þessu að skila hagnaði og samt hækka sorðhyrðum um 30% svona er þetta þarna hjá þessum vinstri mönnum eða hvað,er þetta bara til að sínnast//Halli gamli
Kópavogur.
mbl.is 105 milljón króna afgangur í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband