Innlent | mbl.is | 4.12.2011 | 21:24
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, veltir því fyrir sér í pistli á vef sínum hversu langt Samfylkingin er reiðubúin að ganga til að þóknast þeim sem gæta kínverskra hagsmuna.
Fullyrðir Björn í pistlinum að einsdæmi sé að íslenskur ráðherra gangi fram með þessum hætti gagnvart erlendum fjárfesti og vísar þar til ummæla Katrínar Júlíusdóttur í fréttum Sjónvarpsins í gær ... þegar hún sagði að embættismenn á hennar vegum hefðu verið í sambandi við Huang Nubo og ætlan sín væri að þeir leiðbeindu honum í gegnum íslenskt lagaumhverfi svo að hann gæti fjárfest hér á landi í ferðaþjónustu, skrifar Björn.
Á sínum tíma sameinaði stuðningur við Baugsmenn Samfylkinguna. Allir vita hvernig það fór allt saman. Þá varð Evrópusambandið og evran til þess að sameina Samfylkinguna. Allir sjá hvernig það er allt að fara. Nú er það hins vegar Huang Nubo sem er sameiningartákn Samfylkingarinnar. Þeim er ljúft að nota hann til að berja á Ögmundi Jónassyni og vinstri grænum.
Það er helsta helgarskemmtun innan ráðherraliðs Samfylkingarinnar að ögra vinstri grænum. Sunnudaginn 27. nóvember toppaði Jóhanna skemmtunina með árásum á Jón Bjarnason eftir að hún hafði fjargviðrast út í Ögmund. Nú tekur Katrín Júlíusdóttir sig til og leggur flokkssystkinum sínum til skemmtiefnið.
Einn þátturinn í þessari viðleitni er að sjálfsögðu að eiga greiðan aðgang að valda- og áhrifamönnum í viðkomandi landi. Enginn þarf lengur að efast um að Huang Nubo á greiðan aðgang að forystumönnum Samfylkingarinnar. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur lýst ánægju með áform hans, sérstakur fulltrúi utanríkisráðuneytisins fór með Huang um landið til að kanna hvar hann ætti helst að láta að sér kveða. Ragnar Baldursson, starfsmaður sendiráðs Íslands í Kína, lét ekki við það eitt sitja heldur gekk með Huang á norðurpólinn. Kristín Árnadóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, núverandi sendiherra Íslands í Kína, tók þátt í blaðamannafundi með Huang Nubo í Peking í byrjun september til að staðfesta ánægju utanríkisráðuneytisins með kaup Huangs á Grímsstöðum á Fjöllum. Þann blaðamannafund sat Lúðvík Bergvinsson, lögfræðilegur ráðunautur Huangs, fyrrverandi formaður þingflokks Samfylkingarinnar, skrifar Björn í pistli sínum.//////Ekki er maður nú sammá Birni félaga sínum þarna,þetta minnir mann um rússagríluna um árið !!! það að leigja manninum til framkæmda er engin goðgá,sýnum augum litum við á silfrið hann eða ég//Halli gamli
Björn: Hversu langt gengur Samfylkingin? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:19 | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.