13.12.2011 | 10:37
Hætta á að ESB klofni í tvennt///Og hvað er að því, ekkert bara gott!!!!!
Erlent | mbl.is | 13.12.2011 | 9:55 Jose Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir að krafa Breta um að Bretland fái undanþágu frá fyrirhuguðum reglum um fjármálaþjónustu ógni stöðu Evrópusambandsins og hætta sé á að sambandið klofni í tvennt. Þetta kom fram í máli Barrosos á Evrópuþinginu í dag þar sem rætt var um leiðtogafund ESB-ríkjanna í Brussel í síðustu viku. Þar samþykktu 26 af 27 ríkjum ESB að gera nýjan samning um skatta- og fjármál eftir að Bretar höfnuðu því að sáttmálum sambandsins yrði breytt. Ætla ríkin að gera milliríkjasamning um hertar reglur um útgjöld og fjárlagah
alla með ákvæðum um sjálfkrafa refsingar fyrir að brjóta reglurnar. Barroso fór ekki nákvæmlega ofan í saumana á því hvað David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, setti fyrir sig á fundinum þrátt fyrir að vitað sé að skattur á fjármagnsflutninga sé meðal þess sem hann gat ekki sætt sig við. Cameron varði ákvörðun sína í breska þinginu í gær og sagðist ekki hafa átt annars úrkosta en beita neitunarvaldi gegn breytingum á Lissabon-sáttmálanum. Hagsmunir Breta hefðu verið í húfi, þeir hefðu misst of mikið vald úr landi til Brussel. Ég fór til Brussel með eitt markmið í huga að vernda þjóðarhagsmuni Breta. Og það gerði ég, sagði ráðherrann. Íhaldsmenn hans hylltu hann en þingmenn Verkamannaflokksins gerðu hróp að ráðherranum og varð þingforseti margsinnis að biðja menn að gæta stillingar. Kannanir gefa til kynna að mikill meirihluti Breta styðji afstöðu forsætisráðherrans. Cameron segir að áætlun sem 26 leiðtogar af 27 samþykktu, um hert eftirlit embættismanna í Brussel með fjárlögum og fleiri aðgerðir sem eiga að leysa skuldavanda ríkja evrusvæðisins myndu ógna stöðu Lundúna sem einnar helstu fjármálamiðstöðvar heims. Bretar gætu því ekki tekið þátt í þessum aðgerðum. Andstæðingar ráðherrans saka hann um að hafa gert reginskyssu og útilokað Breta frá öllum áhrifum í ESB, einangrað þá. Hann ýki auk þess mjög þau áhrif sem þátttaka myndi hafa á stöðu Lundúna. Nick Clegg, aðstoðarforsætisráðherra og leiðtogi Frjálslyndra demókrata, gagnrýndi mjög afstöðu Camerons í Brussel. En hann taldi jafnframt að Frakkar og Þjóðverjar hefðu stillt honum upp við vegg, ekki sýnt neinn sveigjanleika. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, sagði í gær að raunveruleikinn væri sá að Evrópusambandið væri tvíklofið eftir að Bretar beittu neitunarvaldi sínu á föstudag.//////Ég sé ekkert að þvi að þetta bara klofni i 2-3 þetta vara alltaf áætlun Merkel að ráða þarna mestu eða öllu innanadsmálum þessara ríkjsamabands!!! svo þau lönd sem ekki hafa efrir eru sér og svo við EES,ég held að Þetta væri besta lausinninn ekki spurning um það,Bretar eru að gera þaran rétt/Halli gamli
Hætta á að ESB klofni í tvennt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 1046585
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.