Búa sig undir hugsanleg endalok evrusvæðisins//Allur er varin góður!!!

Búa sig undir hugsanleg endalok evrusvæðisins Erlent | mbl.is | 28.12.2011 | 15:28 Breska ríkisstjórnin hefur nú til skoðunar áætlanir um að koma á höftum á inn- og útflæði gjaldeyris frá Bretlandi í því skyni að standa vörð um breskt efnahagslíf ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur samkvæmt fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph. Fram kemur að þessi undirbúningur sé aðeins hugsaður sem viðbr
Höfuðstöðvar Evrópska seðlabankans í Frankfurt.
ögð ef allt fer á versta veg og komið verði á hliðstæðum gjaldeyrishöftum annars staðar í Evrópu með það að markmiði að draga út neikvæðum efnahagslegum afleiðingum þess að evrusvæðið liðist í sundur og evruríki taki upp sína fyrri gjaldmiðla á ný. Breskir embættismenn óttast að ef eitt ríki yfirgefur evrusvæðið muni fjárfestar flytja fjármagn sitt bæði frá því ríki og öðrum evruríkjum til landa sem teldust öruggari. Fjármagnsflæði gæti þá leitað í vaxandi mæli meðal annars til Bretlands og keyrt gengi breska pundsins upp úr öllu valdi sem aftur myndi hafa neikvæð áhrif á áform breskra stjórnvalda til þess að koma á stöðugleika í efnahagslífinu byggðum á auknum útflutningi. Vísað er til þess í fréttinni að fyrr á þessu ári hafi stjórnvöld í Sviss neyðst til þess að binda gengi svissneska frankans við gengi evrunnar til þess að stemma stigu við flæði fjármagns til landsins vegna vaxandi ótta vegna stöðu efnahagsmála á evrusvæðinu. Hafin var vinna af hálfu breskra stjórnvalda við gerð viðbragðsáætlana vegna hugsanlegra endaloka evrusvæðisins í kjölfar þess að stjórnvöld á Spáni vöruðu við því nýverið að hagvöxtur í landinu yrði neikvæður á fjórða ársfjórðungi þessa árs.////#það er ekki ráð nema i tíma sé tekið",segir máltækið!! og það er rétt hja´Bretum að gera gagnvart ESB ekki spurning þarna eru vogeiginlegir hlutir að gersat ,og það vel að taka til og ver ekki með í þessu Bretar vita þaran hvað þeir eru að gjöra/Halli gamli

mbl.is Búa sig undir hugsanleg endalok evrusvæðisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband