4.1.2012 | 16:32
Nýtt fangelsi í notkun 2014////Allt sem hið opinbera gerir verður að bjóða út ? bara teikningar og nefndir kosta sama og byggingin!!!
Nýtt fangelsi í notkun 2014 Innlent | mbl.is | 4.1.2012 | 15:45 Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við nýtt fangelsi á Hólmsheiði geti hafist í lok ársins og að fangelsið verði tekið í gagnið 2014. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Logi Már Einarsson, formaður Arkitektafélags Íslands, undirrituðu í dag samning um útfærslu hönnunarsamkeppni um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík. Hönn
unarsamkeppnin er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu. Samkeppnin verður með þeim hætti að þeir sem uppfylla skilyrði um hæfi geta tekið þátt. Samkeppnisgögn verða afhent keppendum þann 9. janúar næstkomandi og er gert ráð fyrir að niðurstaða dómnefndar liggi fyrir um mánaðarmótin maí/júní 2012. Þá taka við samningar við hönnunarteymið sem verður fyrir valinu og er stefnt að því að framkvæmdir geti hafist í lok ársins. Fyrirhugað er að reisa á Hólmsheiði í Reykjavík nýtt gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga og aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga. Um er að ræða fangelsisbyggingu með 56 fangarýmum en nýja fangelsið á að leysa af hólmi Hegningarhúsið við Skólavörðustíg og fangelsið í Kópavogi. Einnig verður gæsluvarðhaldsdeild í fangelsinu á Litla Hrauni lögð niður og aðstaða hennar tekin fyrir afplánun. Bygginguna skal hanna í samræmi við þá stefnu Fangelsisstofnunar að föngum verði tryggð örugg og vel skipulögð afplánun, að mannleg og virðingarverð samskipti sitji í fyrirrúmi og að fyrir hendi verði aðstæður og umhverfi sem hvetur fanga til að takast á við vandamál sín, segir í tilkynningu. Dómnefnd sem skipuð var vegna samkeppninnar hefur nú lokið við gerð samkeppnislýsingar. Dómnefnd skipa fyrir hönd ráðherra Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður, Páll E. Winkel fangelsismálastjóri og Pétur Örn Björnsson arkitekt og tilnefnd af Arkitektafélagi Íslands, arkitektarnir Gylfi Guðjónsson og Hildur Gunnarsdóttir. Bygging nýs fangelsis á Hólmsheiði mun marka tímamót í sögu fangelsismála á Íslandi. Síðasta sérsmíðaða fangelsið á Íslandi, Hegningarhúsið við Skólavörðustíg, var reist og tekið í notkun árið 1875, fyrir tæplega 140 árum. Fangelsið á Litla Hrauni var byggt sem Sjúkrahús Suðurlands en hætt var við þau áform. Landsstjórnin keypti bygginguna árið 1929 og breytti í fangelsi eða ,,letigarð fyrir slæpingja og landshornamenn eins og lesa má um í þingskjölum þess tíma. Í ríflega hálfa öld hefur staðið til að byggja nýtt fangelsi á höfuðborgarsvæðinu. Um 1960 var Valdimar Stefánssyni sakadómara falið að gera tillögur að nýju fangelsi við Úlfarsá en þau áform dagaði uppi. Síðan hefur saga fangelsisbyggingamála verið langdregin og einkennst af skýrslugerð, úttektum, athugunum og umræðum um ákjósanlega staðsetningu," segir í tilkynningu. Fangelsismál á Íslandi hafa meðal annars verið gagnrýnd í skýrslu Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttindamála á Íslandi. Þar er nefnt að elstu fangelsi landsins standist ekki nútímakröfur, biðlisti eftir fangelsisvist sé of langur og að ekki sé hugað nógu vel að stöðu kvenfanga og ungra afbrotamanna innan fangelsiskerfisins.////þetta er að varað sagan endalausa og nú á að kost til nefndir og utboð og teikningar og verðlaun uppá sama og kost er byggja er þetta gáfulegt þegar allt á að spara/Halli gamli
Nýtt fangelsi í notkun 2014 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.