Ætluðu ekki að hlífa stjórnmönnum//en hvað bara einn sekur????

Ætluðu ekki að hlífa stjórnmönnum Innlent | mbl.is | 20.1.2012 | 17:54 Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segir að í upphafi umræðu um uppgjör vegna hruns bankakerfisins hafi verið full samastaða um að stjórnmálastéttin gæti ekki hlíft sjálfri sér í þessu uppgjöri. Steingrímur sagði þetta í umræðum á Alþingi um hvort draga ætti til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde. Steingrímur ræddi aðdraganda málsins og minnti á að það hefði verið full samstaða um það á Alþingi haustið 2008 um að fram færi rannsókn á orsök efnahagshrunsins og fjalla ætti um ábyrgð þeirra sem komu að málum. Það hefðu líka allir gert sér grein fyrir að svo kynni að fara að þingið þyrfti að fjalla um ábyrgð ráðherra í þessu sambandi. Um þessa vinnu hefði verið full samstaða þangað til þingmannanefndin, sem falið var að fjalla um ábyrgð þingsins, tók að ræða spurningu um ábyrgð einstakra ráðherra. „Það var algerlega ljóst hvað í vændum gæti verið. Menn sammæltust um það að ekki yrði undan því vikist að fara einnig ofan í þennan þátt málsins. Stjórnmálastéttin í landinu gæti ekki hlíft sjálfri sér við rannsókn á sínum störfum og greiningu á sinni ábyrgð.“ Steingrímur sagðist telja tal um pólitískar ofsóknir því eitt af því allra dapurlegasta sem upphefði komið eftir á í þessu sambandi. „Mér finnst menn gerast drjúgir við það að setja allt annan blæ á þetta mál heldur en en að nokkurt tilefni er til þegar undirbúningur þess og þess sem fyrir lá er haft í huga. Tillagan var afgreidd hér, ekki eins og ég greiddi atkvæði að öllu leyti, en ég var hér með fullri meðvitund. Ég hélt að það ætti almennt við um þingmenn, sem eitthvað hafa sinnt þingstörfum, að þeir vissu hvernig þetta gengi fyrir sig. Við erum að gera þetta nærri upp á hvern einasta dag. Tillaga er borin upp til atkvæða og breytingartillögur við hana og svo er tillagan sjálf borin upp svo breytt. Nú koma menn upp og segja að það hefði átt að biðja um frest; 15-16 mánuðum seinna. Það er ansi seint fram komið. Hefðu menn þá fyrstu dagana eftir atkvæðagreiðsluna gert slíkar athugasemdir þá hefði verið ráð að velta því fyrir sér, eigum við kannski að staldra við áður en við höldum vegferðinni áfram? Það var ekki gert heldur var hér ráðinn saksóknari og honum falið þetta verkefni og menn tóku að sér að setjast í sérstaka ráðgjafanefnd með honum. Bíddu, af hverju tóku menn sæti í þeirri nefnd ef þeir ef þeir höfðu efasemdir um það sem þeir voru að gera? Af hverju kemur það allt í einu upp núna 14 mánuðum síðar?“ spurði Steingrímur. Atli Gíslason alþingismaður sagði fyrr í dag að gera hefði átt hlé á atkvæðagreiðslunni þegar ljóst var að aðeins einn af fjórum ráðherrum yrði ákærður. Hann á einnig sæti í nefnd sem er saksóknara Alþingis til ráðgjafar í málinu gegn Geir H. Haarde.///////Svona er þetta þegar menn taka sér þau völd sem þeir hafa ekki að ,að eftir ransóknarskirluna stóru um hrunið skuli bara einn maður vera sakfeldur af Alþingi Íslendinga!!! þetta  er hneyksli og ekkert annað og svo er annað nú i gangi að staðfesta þetta í annað skiptið!!! er þetta hægt ??Nei segi ég hiklaust það er ekki hægt/Halli gamli

mbl.is Ætluðu ekki að hlífa stjórnmálamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hann er algjörlega úti að aka karlinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.1.2012 kl. 20:45

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Halli. Þegar fólk segir eitt og gerir annað, án nokkurs skiljanlegs rökstuðnings, þá er ekki hægt að trúa þeim.

Steingrímur Jóhann Sigfússon er maður framkvæmda, þegar kemur að því að dæma andstæðingana, en hvar er réttlætið ópólitíska geymt, í sál og hjarta þessa manns? Hvað er að honum? Hvers vegna gerir hann svona þvert á það sem hann segir? Það er alltaf ástæða fyrir öllu.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.1.2012 kl. 08:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband