Allir græða á flugframboði Easy Jet/// ég segi bara samkeppni er til góða!!!!

Allir græða á flugframboði Easy Jet Viðskipti | Morgunblaðið | 9.2.2012 | 10:30 Í gær tilkynnti Easy Jet að það myndi á næsta ári byrja að fljúga frá Íslandi til London allan ársins hring. Fram að þessu hafði verið áætlað að fljúga aðeins yfir sumartímann. Um þrjár ferðir á viku er að ræða og mun lægsta miðaverð fram og til baka með flugvallarsköttum vera 90 pund eða um 17.500 íslenskar krónur, að sögn Hughs Aitkens, framkvæmdastjóra viðskipta EasyJet á Bretlandi, sem er í heimsókn á Íslandi sem stendur. 
Þotur EasyJet hefja komur sínar til Íslands í lok mars. .
Lággjaldaflugfélagið Easy Jet er stærsta flugfélag í Bretlandi - stærra en bæði British Airwaves og Virgin Airlines til samans - og jafnframt 10. stærsta flugfélag í heimi. „Við leggjum mikið upp úr því að nýta flugflota okkar og reynum að vera komnir aftur í loftið 45 mínútum eftir lendingu,“ segir Aitkin. „Þannig er flugáhöfnin alltaf komin heim í tíma og því þarf ekki að borga fyrir gistingu hennar erlendis. Hugh Aitken, framkvæmdastjóri viðskipta EasyJet í Bretlandi, er hér á landi til að kynna flugáætlun fyrirtækisins. mbl.is/Ómar Með lágum kostnaði höldum við verðinu niðri en það er mikilvægt að bóka snemma til að ná lægsta verði á miðann. Við hófum sölu á miðum í nóvember og erum þegar búnir að selja 8.000 miða til Íslands en það er um 30% allra ferða sem við bjóðum upp á í sumar. Salan gengur það vel að ákveðið var að bjóða upp á ferðir allan ársins hring frá og með apríl. Það kom okkur á óvart hvað vel gekk að selja Íslendingum miða, því helmingur af miðunum sem búið er að selja fór til þeirra.“ Aðspurður um samkeppnina á Íslandi segist hann halda að markaðurinn muni stækka við komu þeirra. „Við höfum reynslu af því að markaðir stækka yfirleitt við það að við komum inn á þá, því fleira fólk hefur tækifæri á að fljúga ef farmiðarnir eru ódýrir. Til dæmis þegar við hófum flug frá Glasgow til Berlínar fjölgaði þeim sem ferðuðust þá leið á skömmum tíma um tífalt - úr sex þúsund í sextíu þúsund manns. Við höfum verið að skoða þetta í tvö ár og erum nokkuð vissir um að við höfum valið rétt. Ísland er spennandi kostur í dag og við munum gera okkar til að landið verði enn meira spennandi. Forstjóri fyrirtækisins kemur hingað í vor og með honum verða átta toppblaðamenn í ferðamennsku.“ Kemur ekki á óvart Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir að þessi ákvörðun Easy Jet komi ekki á óvart og segir aðspurður að það verði engin stefnubreyting hjá þeirra flugfélagi við þessar fréttir. „Það hefur gengið mjög vel í ferðamannaþjónustunni og farþegum fjölgað. Við erum með tvær ferðir á dag, fjórtán sinnum í viku, og finnum vel fyrir aukningunni. Við teljum Easy Jet vera að stefna á annan markað, það verði annar hópur fólks sem ferðast með þeim. Það er líka svo mikið af fólki sem býr í London að ég held að markaðurinn geti borið fleiri ferðir þaðan, sérstaklega þar sem það er frá öðrum flugvelli. Við fljúgum frá Heathrow og þeir frá Luton. Þetta er líka meira lággjaldafyrirtæki, við erum ekki í þeim bransa. En þetta mun gagnast ferðamannaþjónustunni og vonandi minnka sveiflurnar í árstíðum hvað hana varðar. Þetta hugsanlega stækkar bara kökuna, það er það sem gerðist þegar British Airwaves og flugfélagið Go fóru að fljúga hingað, þá stækkaði bara kakan og farþegum fjölgaði til Íslands.“ Vanir samkeppni Spurður hvort það muni valda einhverri stefnubreytingu hjá Iceland Express að Easy Jet sé farið að fljúga hingað til lands er svar Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, einfalt: Nei. „Við höfum verið í samkeppni við 14-18 flugfélög sem hafa flogið hingað á sumrin og óttumst ekki samkeppni við Easy Jet frekar en aðra,“ segir Heimir Már. „Við teljum okkur vera að fljúga frá betri flugvelli en til dæmis Easy Jet sem er á Luton-flugvelli, auk þess sem þeir lenda á slæmum tíma og samgöngur þaðan eru ekki eins góðar. Það er ágætt ef menn telja að markaðurinn sé nógu stór til þess að fara í samkeppni við okkur, farþegar munu njóta þess. Markaðshlutdeild okkar fór úr 35% af öllum farþegum frá London til Íslands í 49% í ágúst og höfum við verið að nálgast það að vera með helming allra farþega sem fljúga þessa leið. Við teljum að það sé vegna þess að við erum með góða þjónustu og hagstætt verð.“ Ódýrt hjá Easy Jet Lágfargjaldaflugfélagið Easy Jet var stofnað árið 1996 og er með höfuðstöðvar sínar í London á Luton-flugvelli. Það var Kýpur-Grikkinn Stelios Haji-Ioannou, sem kominn er af ríkri fjölskyldu úr skipabransanum, sem stofnaði fyrirtækið og einbeitti sér fyrst að tveimur áfangastöðum, frá London til Glasgow og einnig til Edinburg. Rekstrarstefna flugfélagsins, rétt einsog hjá Ryanair, er fengin frá bandaríska flugfélaginu Southwest Airlines. Hugmyndin er að skera sem mest niður í kostnaði, eins og að láta farþega sjálfa útvega sér tengiflug, hafa ekki frían mat um borð og hafa góða nýtingu á flugvélunum. Öfugt við Southwest er Easy Jet með mjög ungan flugflota, meðalaldur vélanna er 3½ ár.///////þetta er mjög gott mál ,ekki spurning,svo eigum við eftir að sanna það,og skoða ,en samkeppni er það sem við viljum öll,og þetta er það og það er ekki af einu sem þetta er að verða 10 stærðsta flugfélag i heimi!!! en mey skaða að morgni lofa og við gefum þessu tíma og skoðum,ekki spurning, að við viljum að allir getir flogið ekki bara þeir efnuðu!!!!Halli gamli

mbl.is Allir græða á flugframboði Easy Jet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband