Nýtt framboð Lilju Mósesdóttur með ríflega fimmtungs fylgi VísirInnlent 10. febrúar 2012 07:30 Tweet SendaPrenta Lilja Mósesdóttir Kjósendur virðast bíða eftir nýjum framboðum samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Ný framboð mælast með nærri þriðjung atkvæða. Hátt hlutfall tekur ekki afstöðu til flokka. Samstaða, nýtt framboð undir forystu Lilju Mósesdóttur, fengi ríflega fimmtung atkvæða og fjórtán þingmenn yrði gengið til kosninga nú, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Ný framboð fá samtals ríflega 30 prósent fylgi. Taka verður niðurstöðum könnunarinnar með fyrirvara þar sem enn eru mjög margir sem ekki gefa upp afstöðu. Þó gáfu um 52,9 prósent þeirra sem þátt tóku í könnuninni upp afstöðu til einhvers stjórnmálaflokks. Spurt var sérstaklega um fjögur ný framboð. Almennt hefur lægra hlutfall þeirra sem taka afstöðu þegar spurt er um fylgi flokka í skoðanakönnunum verið tengt óþoli almennings á þeim stjórnmálaflokkum sem í boði eru. Í könnunum sem gerðar voru fyrir hrun var algengt hlutfall í kringum 65 prósent. Niðurstöður könnunarinnar, sem gerð var á miðvikudags- og fimmtudagskvöld, gefa vísbendingu um stöðu flokkanna þrátt fyrir að margir taki ekki afstöðu til flokkanna. Hafa verður í huga að nýju framboðin eiga eftir að móta afstöðu til málefna sem skipta kjósendur máli, frambjóðendur þeirra eru ekki komnir fram og framboðin hafa lítið sem ekkert kynnt sig. Sé miðað við þá sem tóku afstöðu til einhverra flokka nýtur Sjálfstæðisflokkurinn enn mests stuðnings. Um 35 prósent kjósenda segjast myndu kjósa flokkinn nú, sem myndi færa flokknum 24 þingsæti. Flokkurinn er með sextán þingmenn í dag. Samstaða mælist nú með næst mest fylgi, og segjast 21,3 prósent myndu kjósa flokkinn í kosningum, og fengi hann miðað við það fjórtán þingmenn. Önnur ný framboð fá ekki jafn mikinn stuðning. Björt framtíð, undir forystu Guðmunds Steingrímssonar, mælist með 6,1 prósents stuðning, sem myndi skila fjórum á þing. Hægri-grænir, flokkur Guðmundar Franklíns Jónssonar, fengju samkvæmt henni 0,9 prósent atkvæða. Þá fengi Lýðfrelsisflokkurinn undir forystu Guðbjörns Guðbjörnssonar 1,2 prósent atkvæða. Hvorugur næði manni á þing.//////þetta er athyglisvert og vel það,það er svo sterkt að segja að númer eitt sé að læka skuldir heimilanna,og fleira og fleira sem þeir ætla að taka í gegn!!! þessi könnun segir okkur breytingar miklar,þarna fær Samstaða 21.3%=14 menn-sjálfstðisfl.35%=24 menn-Björt framtið 6,1%=4 menn- samfylking 12.3%=5 menn V.G 8%=8 menn-Hreifingin =0 -utanfl. 0--- svo voru þau orð,en þetta er könnun sem okkur ber að skoða!!!!!/Halli gamli
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Leiðari Ólafs Stephensens í Fréttablaðinu í dag skýrir þetta mikla fylgi: fella á niður skuldir, lækka skatta, auka opinbera þjónustu... Eru stjórnmálamenn að tapa sér í yfirlýsingum sem færa þeim auknar vinsældir? Þetta nefnist popularismi á erlendum málum, mætti færa undir lýðskrum.
Ólafur spáir því að ef þessi sjónarmið verði ofan á lendum við aftur í bankahruni, jafnvel verra en 2008.
Við skulum vona að þjóðin átti sig á þessu.
Guðjón Sigþór Jensson, 11.2.2012 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.