Kæra bankastjórnendur/Já er það ekki mál til komið að gera!!!!!

Kæra bankastjórnendur Innlent | mbl.is | 15.2.2012 | 13:59 Hagsmunasamtök heimilanna hafa lagt fram kæru til efnahagsbrotadeildar á hendur öllum stjórnendum og bankaráðum bankanna frá árinu 2001-2012 fyrir brot á stjórnarskrá, almennum hegningarlögum, vaxtalögum, lögum um samningsgerð, lögum um hlutafélög og fyrir að vanrækja eftirlitsskyldu sína. Í fyrsta lagi eru bankastjórnendur sem voru við 
Mynd 515151
 Stjórn frá 2001- 2008 kærðir fyrir að veita gengistryggð lán. „Má leiða líkur að því að hinar ólöglegu lánveitingar hafi jafnvel farið fram vísvitandi, í það minnsta gerðu Samtök banka- og verðbréfafyrirtækja umsögn um frumvarp áður en það varð að lögum og vöruðu við því að ef frumvarpið yrði að lögum yrði ekki heimilt að gengistryggja lán. Jafnframt má geta þess að Verslunarráð Íslands og Samtök atvinnulífsins sendu einnig inn umsagnir áður en frumvarpið varð að lögum þar sem koma fram varnaðarorð í þessa sömu veru,“ segir í tilkynningu frá samtökunum. Þar segir ennfremur að Hæstiréttur hafi staðfest að slíkar lánveitingar brjóti gegn lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38 frá árinu 2001. Eftir setningu neyðarlaganna árið 2008 hafa nýjar lánveitingar af þessu tagi lagst af, en þó er heimilt að veita sannanlega erlent lán sem er greitt út í erlendum gjaldmiðli og innheimt í erlendum gjaldmiðli. Innheimta á ólögmætum gengistryggðum lánum hefur þó haldið áfram á forsendum sem HH telja að stríði gegn samningalögum, vaxtalögum, lögum um neytendalán og stjórnarskrá. Gengið gegn einkaréttákvæðinu Í öðru lagi beinist því kæran gegn þeim bankastjórnendum sem setið hafa í stjórnum frá því bankarnir hófu innheimtu á endurútreiknuðum ólögmætum lánum. Er það mat samtakanna að bankarnir hafi gerst brotlegir við lög og gengið gegn eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar með því að vaxtavaxtareikna lánin annars vegar og hins vegar með því að reikna hærri vexti afturvirkt á greidda gjalddaga allt frá lántökudegi í stað þess að miða við setningu laga nr. 151/2010. Í dómum Hæstaréttar hefur gengistryggingin verið dæmd ólögleg og mælst til að nota óverðtryggða vexti Seðlabankans á ógreiddar eftirstöðvar lána, en ekki á greidda gjalddaga. Kæra stjórnendur nýju bankanna Í þriðja lagi telja Hagsmunasamtök heimilanna að bönkunum sé óheimilt að innheimta vexti fyrir tímabil áður en þeir eignuðust kröfuna, og er það skilningur samtakanna að eigandi skuldabréfs eigi eingöngu kröfurétt á vexti frá þeim degi þegar hann eignast kröfuna. Þessi hluti kærunnar á því við um stjórnendur nýju bankanna þar sem bankarnir eigi ekkert tilkall til vaxtagreiðslna fyrir þann tíma þegar þeir urðu löglegir eigendur skuldabréfa. Gamlir eigendur þeirra hafa þegar innheimt vaxtagreiðslur og greiðslur inn á höfuðstól sem að mati samtakanna eiga að standa í íslenskum krónum. Bankastjórendur kærðir fyrir auðgunarbrot Í öllum tilvikum eru bankastjórnendur kærðir fyrir auðgunarbrot er varða almenn hegningarlög, sem og brot á greinum hlutafélagalaga er varða ábyrgð. Það er mat samtakanna að mikilvægt sé að draga til ábyrgðar þá einstaklinga sem setið hafa í stjórnum bankanna undanfarin ár. Með kæru á hendur bankastjórnendum vilja samtökin leggja áherslu á þá gríðarlegu ábyrgð sem því fylgir að vera stjórnarmaður í bankakerfinu. Hafi fjármálastofnanir stundað refsivert athæfi með ólöglegri lánastarfsemi og síðan ólöglegri innheimtu er það krafa HH að einstaklingarnir sem standa að baki ákvörðunum geti ekki vikið sér undan persónulegri ábyrgð sinni.////Eftir þennan lestur er maður ekki hissa að þetta skuli ekki löngu gert,við eigum að fylgja þessu eftir ekki spurning um það ,og taka þessa menn og skoða í botn/Halli gamli

mbl.is Kæra bankastjórnendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband