Dómur yfir Baldri staðfestur/Ja kemur ekki hrina á eftir allra sem seldu???

Dómur yfir Baldri staðfestur Innlent | mbl | 17.2.2012 | 13:31 Hæstiréttur hefur staðfest tveggja ára fangelsisdóm yfir Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, vegna innherja
Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, Baldur...
svika og brota í opinberu starfi. Einn hæstaréttardómari skilaði séráliti og vildi láta vísa málinu frá. Baldur var ákærður fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi þegar hann seldi hlutabréf í Landsbankanum 17. og 18. september 2008. Baldur var þá ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu og sat í samráðshópi íslenskra stjórnvalda um fjármálastöðugleika. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu, að Baldur hefði búið yfir innherjaupplýsingum þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum, og hefði því verið innherji í skilningi laga um verðbréfaviðskipti og brotið gegn þeim lögumDómur Hæstaréttar hefur ekki verið birtur en dómsorðið var lesið upp kl. 13.30 í dag. Þá er söluandvirði hlutabréfa í Landsbankanum, sem Baldur seldi, gert upptækt en um var að ræða 192 milljónir króna. Karl Axelsson, verjandi Baldurs Guðlaugssonar, fór fram á það fyrir Hæstarétti að málinu yrði vísað frá dómi. Sagði hann að engin ný gögn hefðu verið í málinu þegar ákveðið var að hefja rannsókn að nýju, eftir að Fjármálaeftirlitið felldi málið fyrst niður. Því væri um að ræða endurtekna málsmeðferð sem væri í andstöðu við ákvæði mannréttindasáttamála Evrópu. Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari fór hins vegar fram á það að refsing yfir Baldri yrði þyngd og benti á að refsiramminn leyfði allt að níu ára fangelsi./////Ekki skal rengja þennan dóm,það er svo að Embættismenn eru þagnaskyldir og eiga ekki að notfæra sér aðstöðu sýna,og það ættu þeir allir að gera!!!En þetta er ekki búið mál að menni finnst það eru fleiri ábyggilega sem eru i sömu stöðu og Baldur var og kemur ekki hrina dóma að sama kvarða fljott að mínu áliti er það,og það fljótt,verður ekki Geir Haarde dæmdur af likum einnig um að vita meira en sagt er,svona mætti halda ágfram lengi,verða ekki Jóhanna og Steingrímur dæmt fyrir að ættla að láta okkur borga Icvesave,það verður nóg að gera hjá Dómsvaldin og sertökum næstu árin ,eins viss vinna og við útfarir/Halli gamli

mbl.is Dómur yfir Baldri staðfestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband