Meiri snjór, meiri snjór/Vonandi ekki mikill!!!!!!


Það snjóar í höfuðborginni en spáð er vonsku veðri á...
 Meiri snjór, meiri snjór Innlent | mbl.is | 6.3.2012 | 17:48 Enn hafa veðurguðirnir tekið upp á því að láta snjóa á höfuðborgarsvæðinu. Snjóar nú töluvert en í logni. Kröpp lægð mun fara hratt yfir austurhluta landsins í kvöld og nótt. Henni fylgja mjög snarpar veðrabreytingar. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vill vekja athygli á því að Veðurstofan varar við stormi (meðalvindi yfir 20 m/s) á Suðausturlandi, Austfjörðum og á miðhálendinu í kvöld og nótt. Einnig er spáð verulegri samfelldri úrkomu í kvöld og fram á nóttina. Vegfarendur eru hvattir til að kynna sér veður og færð áður en lagt er upp í ferðir. Þá er rétt að benda á að stórstreymt er þessa dagana og verður straumur mestur á laugardag. Viðvörun Veðurstofunnar hljóðar svo: Veðurstofa Íslands vill vekja athygli á að kröpp lægð mun fara hratt yfir austurhluta landsins í kvöld og nótt og fylgja henni snarpar veðrabreytingar. Í kvöld gengur í vestan 18-25 m/s, fyrst syðst en síðan á öllu austanverðu landinu. Vindhviður við fjöll geta farið yfir 40 m/s. Í fyrramálið minnkar vindur talsvert, og lægir smám saman á morgun.////////Lóan er komin!!!! og viljum ekki meiri snjó als ekki ,það er komið nóg af honum i bili,en þetta verður svo, hvass og rigning i nótt byrjar austanfrá og vestureftir ölduhæð mikil//Halli gamli

mbl.is Meiri snjór, meiri snjór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband