14.3.2012 | 21:22
Brýnt að nýr spítali tefjist ekki///það þarf ekkert að tefjast þó betri staður sé valinn!!!!
Innlent | mbl | 14.3.2012 | 20:11
Brýnt þjóðþrifamál er að nýr Landspítali verði byggður og hættan er sú að frekari rökræður um útfærslu hans verði til að tefja að af því verði. Þetta segir forseti læknadeildar Háskóla Íslands. Hann telur engin rök hafa komið fram sem vegi nógu þungt til að hverfa frá því skipulagi sem er á borðinu.
er að þetta er mjög brýnt þjóðþrifamál og það væri alvarlegt að fresta þessu. Ef þetta frestast um fleiri ár verðum við komin í mikil vandræði með þessar gömlu byggingar, sem eru orðnar úreltar, segir Guðmundur Þorgeirsson, forseti læknadeildar Háskóla Íslands.
Deilt um byggingamagn og ásýnd
Nokkuð hefur verið rætt undanfarið um þá tillögu sem nú er á borðinu um byggingu nýs Landspítala og hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn m.a. gagnrýnt byggingamagnið sem áætlað er og segja það allt of mikið. Þá hefur efasemda gætt meðal lækna, þ.á m. hjá Páli Torfa Önundarsyni, yfirlækni á Landspítalanum, sem telur umfang nýs spítala skaða borgarlandslagið og hægt væri að ná sömu markmiðum um nýjan spítala með minna byggingamagni á efri hluta lóðarinnar við Hringbraut.
Guðmundur segir að rökræður um ásýnd nýs spítala eigi rétt á sér en telur ekkert í þeirri gagnrýni sem fram hefur komið þess eðlis að breyta eigi af leið úr því sem komið er. Ég skil alveg rökin sem eru sett fram í spurningunni um staðsetningu á lóðinni. Gamli spítalinn er gullfalleg bygging og allir eru sammála því að mikilvægt sé að passa upp á ásýnd hans. En ég tel að arkitektarnir sem unnu samkeppnina hafi fundið lausn sem ég er mjög sáttur við og að bakka út úr því núna, það þarf bara miklu þyngri rök til að þess að það sé réttlætanlegt.
Starfsemin sem fyrir er raskist ekki
Guðmundur telur að byggingamagnið sem áætlað er rúmist vel á lóðinni. Hugmyndir um að byggja ekki fyrir framan gömlu aðalbygginguna eigi rétt á sér en hafi líka sína ókosti. Það sem skiptir máli er að fá starfhæfan fyrsta áfanga sem fyrst og að uppbygging hans raski ekki þeirri starfsemi sem er fyrir. Útfærslan á eftir lóðinni er mjög aðgangshörð gagnvart þeirri starfsemi sem er fyrir, það myndi þrengja mjög að henni, þótt það væri ekki ómögulegt.
Þá ítrekar Guðmundur að staðsetningin við Hringbraut sé langheppilegust. Bæði vegna nándar við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, sem sé nauðsynleg til að LSH standi undir nafni sem háskólasjúkrahús, og vegna þess að mun kostnaðarsamara væri að byggja annars staðar, enda mest af nothæfum byggingum við Hringbraut.
Núverandi skipulag býður hættunni heim
Fyrst og fremst leggur Guðmundur þó áherslu hve tímabær bygging nýs spítala sé orðin. Hann segist ekki geta lagt mat á hversu mikið málið myndi tefjast með því að útfæra nýja hugmynd á lóðinni, en óttast að það myndi fresta byggingunni það mikið að í ógöngur stefni.
Við megum ekki við því. Ef við frestum því að byggja nýjan spítala þarf að fara í mjög kostnaðarsamar endurbætur á nýju byggingunum því skipulagið þar er kolómögulegt. Við erum með fullt af fjölbýlisstofum ennþá, fjórbýli þar sem er ekkert klósett. Ef það kemur upp sýking á svona stofu er það óvinnandi fyrir sjúklingana og öryggi þeirra, en líka mjög kostnaðarsamt. Það er rándýrt ef alvarleg baktería nær bólfestu á sjúkrahúsi, en það skipulag sem við búum við býður þeirri hættu heim.
Við getum ekki farið að hringla mikið í þessu. Einhvern tíma verðum við að hafa staðfestu til að bíta á jaxlinn og segja: Við erum búin að taka þessa ákvörðun og verðum að standa við það.
Afgreiðslu tillögunnar að nýjum Landspítala var í dag frestað í skipulagsráði Reykjavíkurborgar, aðra vikuna í röð. ///////Enn og aftur eru sérfræðingar í Læknisfræði að fjalla um staðsetningi þessa spítala en það er svo að þeirra sérfræði er að lækna en ekki byggja,af því bar segja þeir,en þurfa ekki að borga þetta bara segja okkur að þeir viti allt betur en aðrir,nei það á ekki að byggja spitalan þarna als ekki//Halli gamli
Brýnt að nýr spítali tefjist ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.