Hefur ekki áhyggjur af skoðanakönnunum/Herdís er mjög svo frambærilegur Forseti!!!!

Hefur ekki áhyggjur af skoðanakönnunum Innlent | mbl.is | 20.5.2012 | 10:49 Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi segist fjarri því að gefast upp þótt skoðanakannanir bendi til að hún njóti lítils fylgis. Herdís var í Sprengisandi og sagði m.a. að hún teldi tíma Ólafs Ragnars liðinn, 20 ár séu allt of langur tími í embætti. Herdís sagðist ósátt við framgöngu Rúv. Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi segist fjarri því að gefast upp þótt skoðanakannanir bendi til að hún njóti lítils fylgis. Herdís var gestur 
Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi.
Sigurjóns M. Egilssonar í Sprengisandi í morgun og sagði m.a. að hún teldi tíma Ólafs Ragnars liðinn, 20 ár séu allt of langur tími í embætti. „Fjarri því," sagði Herdís þegar Sigurjón spurði hana hvort niðurstöður skoðanakannanna hefðu ekki áhrif á hana. Hún sagðist hafa lesið í Njálu í gærkvöldi og hugsað til þess „að hetjurnar í Njálu eru þær sem eru lagðar í einelti og jafnvel drepnar í lokin, ekki sigurvegararnir. Og ég held ótrauð áfram." Herdís sagði jafnframt að skoðanakannanir væru ekki fyllilega marktækar. Búið væri að stilla upp tveimur turnum eins og einu valkostunum, en margir ættu eftir að gera upp hug sinn. Ríkisútvarpið ekki hlutlaust Herdís gagnrýndi jafnframt umfjöllun fjölmiðla um forsetaslaginn, ekki síst Rúv. Lýsti hún þeirri skoðun sinni að Páll Magnússon útvarpsstjóri hefði átt að taka Þóru Arnórsdóttur af skjánum strax í janúar þegar hún var fyrst nefnd sem hugsanlegur frambjóðandi. „Við erum ósátt [við framgöngu Rúv]. Þetta er spurning um hvort ríkisútvarpið virðist vera hlutlaust og okkur finnst að það sé ekki," sagði Herdís. „Ég tel að þetta sé mjög alvarlegt mál, vegna þess að fjölmiðlar gegna lykilhlutverki í kosningum." Herdís sagði að enn ættu eftir að eiga sér stað umræður um afstöðu frambjóðenda til málefnanna. „Önnur málefni hafa borið hæst, málefni einkalífsins [...] Því miður er dagskrá ríkisútvarpsins ekki þannig að það verði miklar umræður, ekki eins miklar og ég hefði viljað að færu fram til að fólk geti gert upp hug sinn." Fjögur kjörtímabil nóg Aðspurð um málskotsrétt forseta og hvernig Ólafur Ragnar Grímsson hefur beitt honum í sinni forsetatíð sagði Herdís að hún hefði sjálf beitt honum til þess að vísa fyrri Icesave samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og Ólafur Ragnar gerði. Með Icesave tvö og fjölmiðlafrumvarpið hefði hún verið í meiri vafa, sagði hún. „En ég skil að hann hafi gert það, enda finnst mér að lýðræði sé alltaf svarið og ég sé ekki að það sé stórhættulegt að vísa málum til þjóðarinnar því hennar er valdið." Herdís sagðist bera virðingu fyrir Ólafi Ragnari, hann væri gamli prófessorinn hennar. „En hans tími er að mínu mati kominn. Hann er búinn að vera fjögur kjörtímabil, og 20 ár eru allt of langur tími.“//////Það er mín trú að Herdís sé mjög fambærileg og það gott ,en þetta að spyrja hana ekki um hvað henni finnist um aðild okkar að ESB hefur minn gæfumun á að kjósa hana,einnig er þetta með árafjöldan það er umdeilt en verður sennilega að skoðast,en er ekki núna!!!En Herdís er mjög svo klár og mikið mentuð og af góðu fólki komin,en fólkið metur þetta og það á það að gera,en ekki bara kjósa bara af því,mín skoðun er að Ólafur Ragnar hafi staðið sig vel,og gæti alveg staðið 20 árin ef heilsan leifir/Halli gamli

mbl.is Hefur ekki áhyggjur af skoðanakönnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 1046427

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband