Hvítasunnuhelgin verður vonandi slysalaus og allt fari vel!!,og við Kristnir menn eru í hátíðarskapi!!!!

Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt. Umferð gekk að mestu áfallalaust fyrir sig í gær föstudag að sögn lögreglu og lítið var um að menn væru teknir fyrir að aka of greitt. Umferð gengið vel fyrir sig Að sögn lögreglunnar á Selfossi var töluverð umferð um umdæmið seinni part föstudags en gekk afar vel fyrir sig og slysalaust. Reiknað var með að margir yrðu einnig á ferð um svæðið í dag að heimsækja ættingja og vini í uppsveitum Árnessýslu. Þá mun fjöldi hrossa og reiðmanna vera á ferð um Selfoss en búið er að boða til hópreiðar um svæðið í tilefni þess að vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, kl. 15:00 í dag. Eflaust leggja þónokkrir leið sína í Grímsnesið um hvítasunnuna. Súsanna Svavarsdóttir Í Borgarnesi hafði lögreglan sömu sögu að segja. Mikil umferð var um umdæmið í gær og gekk óhappalaust fyrir sig. Töluverð umferð hafði einnig verið um svæðið í morgun, laugardag, þegar mbl.is hafði samband um hádegis bilið, en að sögn lögreglu var veður töluvert síðra í gær svo eflaust hafa einhverjir ákveðið að bíða með að leggja af stað. Hópreið, blúshátíð, vísindaveisla og opið hús hjá listamönnum Ýmislegt er í boði um landið þótt heldur snemmt sé fyrir bæjarhátíðir af ýmsum toga. Þegar hefur verið minnst á fyrrnefnd hátíðahöld hestamanna á Selfossi. Á Hvolsvelli fer fram blúshátíð í Hvolnum í kvöld en Blúsfélagið Hekla hefur endurvakið Norden Blues Festival, blúshátíðina sem fór undir ösku í eldgosunum 2010. Á Ísafirði fer fram Vísindaveisla í Edinborgarhúsinu um helgina þegar Háskólalestin sækir bæinn heim. Ýmiskonar fróðleikur verður þar í boði auk þess sem farið verður í leiki og þrautir. Þá verður listamiðstöðin Nes á Skagaströnd með opið hús á morgun, hvítasunnudag, þar sem gestir eru velkomnir en ellefu listamenn hvaðanæva að úr heiminum hafa undanfarið dvalið við listamiðstöðina. Það er því úr ýmsu að velja fyrir landsmenn þessa hvítasunnuna./////Vonandi að allt fari vel og við öll gerum í því að lata það gerast,allir taka höndum saman um það,og lofum bara lögæslunni að hafa góða daga!! það er af nógu að taka eins og sjá má!!/Halli gamli
mbl.is Fjórar finnskar þotur til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband