29.5.2012 | 16:44
Brenna undan sterkum geislum sólar/Sem betur fer er fólk búið margir ekki allir,að vera í SÓLARLÖNDUM!!!
Brenna undan sterkum geislum sólar Innlent | mbl | 29.5.2012 | 15:47 Á sólríkum, heiðskírum degi er mjög auðvelt að brenna á Íslandi með tilheyrandi óþægindum og skemmdum á húð. Þetta segir húðlæknir sem hefur mælt styrkleika útfjólublárra geisla sólar frá árinu 2009. Margir sólbrunnu um helgina en
da voru geislar sólar sterkir og verða áfram næstu daga. Um Hvítasunnuhelgina fór svo kallaður útfjólublár stuðull (ÚF-stuðull) upp fyrir 5 stig á höfuðborgarsvæðinu, sem þýðir að sólvörn er nauðsynleg til að forðast bruna. ÚF-stuðullinn er alþjóðleg skilgreining sem segir til um hversu sterkir geislar sólarinnar eru á skalanum 1-11. Á Íslandi hefur ÚF-stuðull sólargeisla hæst mælst 7. Óvarin húð getur brunnið á klukkutíma Það er hæglega hægt að brenna í klukkustundar löngu hádegishléi ef engin er sólarvörnin. mbl.is/Gísli Baldur Eftir því sem stuðullinn er sterkari þeim mun skemmri tíma þolin húðin í sólinni án þess að brenna. Þá daga sem stuðullinn fer yfir 3, þá eigum við að nota sólarvörn, ég tala nú ekki um þegar hún fer hærra og stuðullinn er milli 5 og 6 eins og þessa dagana. Það þýðir að ef maður er óvarinn fer húðin að brenna á klukkutíma, segir Bárður Sigurgeirsson læknir hjá Húðlæknastöðinni. Staðreyndin er sú að geislar sólar geta verið afar sterkir hér á Íslandi og þegar við bætist hversu lengi sólin er hátt á lofti og hversu hreint loftið er gjarnan, er hætt við því að útiveru fylgi sólbruni sé aðgát ekki höfð. Litlar upplýsingar hafa verið um styrk útfjólublárra geisla hér á landi, en Bárður hefur frá árinu 2009 mælt og rannsakað geislun frá sólinni og birtir upplýsingarnar jafnóðum á netinu. Sumarblíða í Nauthólsvík Mbl.is/Eggert Jóhannesson Sortuæxli orðin algengari Þetta er bara þjónusta við almenning og áhugamál hjá okkur, segir Bárður og bendir á að sólbruni er einn helsti áhættuþáttur fyrir húðkrabbameinum og tíðni nýgengi sortuæxla hefur margfaldast undanfarin ár á Íslandi, sérstaklega hjá ungu fólki. Mikil aðsókn var jafnt í sundlaugar sem á golfvelli í góðviðrinu um helgina og uppskáru margir rauðbleika húð fyrir vikið. Samkvæmt Veðurstofu Íslands heldur heiðríkjan áfram út vikuna. Ský og rigning auk mengunar og móðu að ógleymdu ósonlaginu eru meðal þess sem dregur úr styrk sólargeislanna. Þegar sólin er hæst á lofti stóran hluta dags og loftið er tært eins og það jafnan er á Íslandi er lítið sem dregur úr geisluninni. Full ástæða er því til að draga fram sólarvörnina. Skaðbruni á Hvannadalshnúk - sólin eins og í Afríku Með hækkandi sól hefur styrkur útfjólubláu geislanna aukist, í dag mælast þeir um 5,4 stig í Reykjavík og 5,5 stig í Borgarfirði. Bárður segir að yfir hásumarið sé styrkur sólargeislanna jafnan á milli 5 og 6 en hafi hæst mælst 7 hér á landi. Sterkust er sólin um klukkan hálftvö síðdegis, en þá er í raun hádegi hér á landi. Uppi á jökli getur sólin hins vegar auðveldlega orðið sterkari en hún er við Miðjarðarhafið, að sögn Bárðar. Stuðullinn hækkar eftir því sem hærra er farið yfir sjávarmál, auk þess sem snjórinn endurvarpar honum af krafti. Á svona degi eins og í dag getur styrkur geislanna á Hvannadalshnúk verið álíka og í Afríku, enda höfum við fengið fólk á síðustu vikum sem kemur skaðbrunnið ofan af jökli af því það áttar sig ekki á þessari staðreynd. Bárður segir þó að sá hugsunarháttur sé á undanhaldi að sólarvörn sé bara þörf í útlöndum. Það hefur sem betur fer orðið mikil breyting þar á, það er fullt af fólki sem notar sólarvörn reglulega á Íslandi, enda er þörf á því. Við húðlæknar þekkjum það, við erum með fullt af sjúklingum sem eru í áhættuhópum bæði varðandi húðkrabbamein og sortuæxli. Það er að aukast, sérstaklega hjá ungu fólki, því eftir því sem við höfum það betra og getum ferðast meira og notið útiveru á Íslandi þá fáum við þessi vandamál frekar. ÚF-stuðul sólargeisla í Reykjavík má sjá hér og í Borgarfirði hér. Bárður segist hafa hug á því að setja upp mæla á fleiri stöðum á landinu við tækifæri.//////Það er há alvarlegt mál að brenna i sól,bara mjög svo hættulegt,þess vegna verður að fara eftir leiðbeiningum,og ekki trassa það,það getur orðið manni dýrt!!ÉG hefi 2* brunni dolítið erlendis, var ekki nógu vel varin ,svo um 1954 var ég ásamt félaga mínum að vinna aukavinnu í garðyrkju og vorum í Bústað og stórri lóð upp við Elliðárvatn þar að vinna í skeifu sem við vorum að setja upp stórri !!erfitt en við þreittir !!berir að ofan,en sofnuðum í sólinni, ég ættla ekki að lýsa næstu dögum þeir voru heilt helvíti ef segja má svo ljótt/Nei varist að brenna!!!/Halli gamli
Brenna undan sterkum geislum sólar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.