Heimilin og fyrirtækin á oddinn Innlent | mbl.is | 29.5.2012 | 20:04 Ég vil hér, enn einu sinni, rétta fram sáttarhönd. Sjálfstæðisflokkurinn er tilbúinn til þess að ná fram þverpólitískri sátt um þau mál sem snúa að því að bæta hag heimila og fyrirtækja, sagði Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokks, við eld
húsdagsumræður á Alþingi í kvöld. Ólöf sagði í ræðu sinni, að tími sé kominn til að segja heimilin og fyrirtækin á oddinn. Við þurfum að leysa skuldamál heimilanna, við þurfum að skapa umhverfi þar sem lítil og meðalstór fyrirtæki geta vaxið, ráðið starfsfólk og horft til framtíðar. Við þurfum að skapa hér umhverfi þar sem heimilin geta horft áhyggjulaus til framtíðar. Hún sagði að á meðan heimilin ná ekki saman og fyrirtækin geti ekki vaxið leggi ríkisstjórnin áherslu á pólitíska hugmyndasigra. Því skuli engan undra að hvessi í þingsal þegar mörg umdeild mál eru lögð fram, að ekkert þeirra snúi að því að bæta hag heimilanna í landinu. Sjálfstæðisflokkurinn hafi ítrekað farið fram á að rýmt yrði á dagskrá þingsins svo mikilvæg mál fáist rædd, á það hafi ekki verið hlustað. Yfirgangur sem nær nýjum hæðum Ólöf sagði yfirgang framkvæmdavaldsins gagnvart löggjafasamkundunni hafa náð nýjum hæðum á yfirstandandi kjörtímabili. Á síðustu þremur árum hafi hrúgast inn mál á síðasta mögulega degi, yfir fimmtíu mál hvert ár, og þar á meðal grundvallarmál og mál sem verulegur ágreiningur stendur um. Við slíkar aðstæður er það skylda þingsins, og stjórnarandstöðunnar, að grípa í taumanna og stöðva þessa frekju framkvæmdavaldsins. Ennfremur vék Ólöf aðeins að því vantrausti sem ríkti á störfum þingsins. Við það verður ekki unað lengur, og lykilatriði í því að skapa traust að nýju, að setja á dagskrá mikilvæg mál sem skipta landsmenn einhverju máli. Hún sagði eitt alvarlegasta dæmið um yfirgang ríkisstjórnarinnar stjórnarskrármálið, sem hafi frá upphafi verið í ógöngum. Enginn raunverulegur vilji hefur verið til að ræða inntak tillagna stjórnlagaráðs og hvort raunverulegur vilji sé til þess á þingi að gera svo miklar breytingar á stjórnarskránni. [...] Breytingar á stjórnarskrá bæta ekki hag heimila og fyrirtækja. Eigum við ekki að segja þau mál í forgang fyrst? Brugðist litlum og meðalstórum fyrirtækjum Hvað efnahagsmálin áhrærir sagði Ólöf að gera þurfi mun betur í atvinnuvegafjárfestingu. Af hagvaxtartölum verði ekki séð að atvinnulífið sé að taka við sér og ríkisstjórnin hafi því brugðist litlum og millistórum fyrirtækjum algjörlega. Nýjasta útspilið í loforðum um þúsundir starfa, fjórða árið í röð, breytir engu þar um. Ríkisstjórnin hefur ítrekað brugðist litlum og meðalstórum fyrirtækjum, alveg eins og hún hefur brugðist heimilum landsins./////Auðvitað er maður kannski hlutdrægur!! en þori alveg að segja eigin fólki það miður fer og það er einnig þvi miður stundum,en þessi ræða var frábær og ekkert ofsagt sem gera þarf,og verður að gera!!/ef ekki ílla á að fara!!þess vegna staða heimilanna sem ekkert hefur verið í gert!! svo atvinna og framfarir þar allt stoppað af V.G og auðvitða verða samfylkingarmenn að ver neð þar,þvi þeir fá að láta ESB ganga á fullu,þvi eins og þeirra flokksformaður samf.sagði eina björgun unga fólkis er að ganga þarna inn og taka upp evru!!! En aftur að Ólöfu Nordal, hún sagði í þessari 10 mín ræðu það sem okkur brennur,og allavega verður það sem næsta rikisstjórn þarf að gera,þvi ekki gerir þessi það!!!!/Halli gamli
Heimilin og fyrirtækin á oddinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.