29.5.2012 | 21:01
Góðir hlutir skotmörk ríkisstjórnar/þau orð að sönnu: og eru hárrétt!!
Góðir hlutir skotmörk ríkisstjórnar Innlent | mbl.is | 29.5.2012 | 20:24 Allir þeir þættir sem haldið hafa Íslandi á floti efnahagslega eftir bankahrunið haustið 2008 hafa orðið skotmörk ríkisstjórnarinnar. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, við eldhúsdagsumræður á Alþingi í kvöld. Þe
ir þrír hlutir sem Sigmundur nefndi eru í fyrsta lagi það að almenningur var ekki gerður ábyrgur fyrir skuldum einkabanka. Í öðru lagi aukinn útflutningur og hagvöxtur sem varð til með lækkun gjaldmiðilsins og í þriðja lagi sterkir innviðir sem byggðir voru upp á undanförnum áratugum. Reynt var að færa tap bankanna yfir á almenning, ráðherrar vega hvað eftir annað að gjaldmiðli eigin lands og stöðugt er höggvið í innviðina sem tryggt hafa verðmætasköpun og velferð. Um leið var kastað á glæ tækifærum til að vinda ofan af áhrifum gengisfallsins á skuldsett heimili og nýta innviðina til að skapa þau útflutningsverðmæti sem við þurfum á að halda, sagði Sigmundur Davíð. Sigmundur sagði það hlutverk næstu ríkisstjórnar að snúa við þessari þróun og nýta tækifæri Íslands til að byggja upp raunverulega velferð á nýjan leik. Næsta ríkisstjórn þarf að koma til móts við skuldsett heimili og gera fólki kleift að vinna sig út úr vandanum í stað þess að skapa eingöngu neikvæða hvata. Einfalda þarf skattkerfið að nýju Einnig nefndi Sigmundur að næsta ríkisstjórn þurfi að einfalda skattkerfið á nýjan leik, en um leið gæta að það tryggi tekjujöfnun, m.a. með hækkun skattleysismarka. Einnig þarf að afnema ósanngjarnar og óhagkvæmar tekjutengingar sem bitnað hafa mjög hart á eldriborgurum undanfarin ár. Þá sé aðkallandi að fólki verði gert auðveldara að stofna og reka lítil fyrirtæki. Slík fyrirtæki séu uppspretta þeirra starfa og verðmætasköpunar sem þjóðin þurfi á að halda. Nú eru kerfisflækjurnar orðnar slíkar að starfstími einyrkja eða lítilla atvinnurekenda fer að miklu leyti í að komast í gegnum frumskóg skriffinnsku og annarra hindrana. Ennfremur nefndi Sigmundur Davíð að taka þurfi ríkisfjármálin föstum tökum. Ný stjórn ætti strax að loknum kosningum að vinna fjárlagagerð fyrir allt kjörtímabilið þar sem áhersla verði lögð á fjárfestingu sem skili auknum tekjum til lengra tíma. Hér eru næg verðmæti og framleiðslugeta til að skapa velferð fyrir rúmlega 300.000 íbúa landsins. En það byggist á því að vel sé með verðmætin farið og " ///////Þessi ræða mjög skellegg og vel það enda skörulega mælt og ákveðið!!" sannleiknaum er hver sárreiðastu" segir máltækið,og það kom beint i ljós hjá Steingrími Stórráðherra eftir ræðu Sigmundar!!!!Hún virðist hafa komið kalli í ham,og talaði hann ,og sagði okkur best i heimi,ekkert mynna,hver trúir honum???En Sigmundur er mjög svo rökfastur og lætur ekki þessa Komma koma sér úr janfnvægi/Halli gamli
Góðir hlutir skotmörk ríkisstjórnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.