29.5.2012 | 21:53
Enn ekki komin á áfangastað/Ágæt ræða Fjármálaráðherra !!!og fleiri!!!
Enn ekki komin á áfangastað Innlent | mbl.is | 29.5.2012 | 21:27 Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra sagði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi að þrátt fyrir sumarblíðuna þurfum við Íslendingar að horfast í augu við það, að enn séum við ekki komin á þann áfangastað sem við ætluðum okkur. Séð er fyrir endann á erfiðleikunum en þó megi ekki sleppa takinu strax. Hún sagði mörg brýn verkefni sem ráðast þurfi í, og ljóst að árangur af aðhaldsrekstri sé mikill. Það eigi ekki aðeins að vera áhugamál fjármálaráðherra heldur allra þingmanna að gæta að því að íslenska ríkið verji ekki meiri fjármunum en það aflar. Það skipti máli að okkur miðar vel að komast á áfangastað.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi meðal annars um sjávarútveginn og lagasetningu í sjávarútvegsmálum. Hún sagði að lagasetning eigi ekki að þóknast þröngum hugmyndafræðilegum markmiðum ríkisstjórnarinnar. En ég er fylgjandi veiðigjaldi. Fyrir auðlindina á að greiða. Aðferðarfræðina verður hins vegar að vinna í samvinnu löggjafans og hagsmunaaðila með heildarhagsmuni en ekki sérhagsmuni að leiðarljósi. Ragnheiður Ríkharðsdóttir Eyþór Árnason Þá sagði Ragnheiður að margar fjölskyldur og einstaklingar séu enn í kröppum dansi, verðbólga eykst og lánin hækka. Það sé skylda stjórnmálamanna að ryðja úr vegi pólitískum hindrunum til að efla hér tækifæri til verðmætasköpunar. Til dæmis verði að breyta um skattastefnu enda hvetja lágir skattar en háir skattar letja.
Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks, var einnig tíðrætt um fjárfestingastefnu og minnti á að framsóknarmenn hafi ítrekað lagt fram tillögur í efnahagsmálum, eftir ítarlegt samráð við aðila í efnahagslífinu. Þar komi fram að tækifæri blasi við en ríkisstjórnin hafi ekki hlustað á þær. Ögmundur Jónasson Ómar Óskarsson Einnig sagði Birkir að hverfa verði frá öfgum í hugmyndafræði, hvort sem það sé til vinstri eða hægri. Hófsöm miðjustefna hefur sjaldan átt eins mikið við. Þar sem verkin tala.
Gott að komast í sólina Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði að gott hefði verið að komast í sólina um hvítasunnuhelgina. Allir sem maður hitti voru í góðu skapi, það var góð tilbreyting. Ögmundur sagði, að nú þegar sjái til sólar sé ánægjuefni að geta sett aukna fjármuni í framkvæmdir, bæði á landsbyggðinni en ekki síður á höfuðborgarsvæðinu. Það verði til þess að skapa atvinnu, sem sé það sem skiptir einstaklinga og fjölskyldur grundvallarmáli. Missi menn vinnuna hverfi lífsbjörgin og á stundum lífsgleðin. Ráðherrann ræddi einnig um Evrópusambandið og sagði, aldrei þessu vant, gott að fá stækkunarstjóra ESB í heimsókn hingað til lands. Hann hafi staðfest það sem margir vita, að hægt sé að ljúka aðildarviðræðum á tiltölulega stuttum tíma. Þá geti þjóðin gengið til þjóðaratkvæðagreiðslu á þeim upplýsta grundvelli sem kallað hefur verið eftir. Viðfangsefnið er að leita eftir samstöðu um dagsetningu á þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem spurt verður hvort við viljum ganga í Evrópusambandið. Hann sagði að það eigi ekki að henda okkur sem gerðist í Noregi. Ég vil ekki að við hlaupum frá þessu verki, en við verðum að knýja á um niðurstöðu. Þjóðin á rétt á aðkomu í þessu máli áður en umboð er endurnýjað í þingkosningum.//////Þessar ræður flesta bara góðar og margt gott sagt þarna ekki síst hjá Oddný G.Harðard.og reyndar einnig Ögmundi sem er að verða eftir henni ESB sinni?? en hinir kröftugar og góðar ræður,en svona eftir á að hyggja það þarf að skipta um ríkisstjórn sem fyrst//Halli gamli
Enn ekki komin á áfangastað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.