31.5.2012 | 14:53
Verðbólguhorfur hafa versnað/Hvað segir þetta fyrir skuldara???Takið bara Verðtrygginguna af!!
Verðbólguhorfur hafa versnað Viðskipti | mbl.is | 31.5.2012 | 13:21 Verðbólguhorfur hafa versnað í uppfærðri þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans miðað við spá sem gefin var út í nóvember í fyrra. Miklar verðbólguvæntingar, veik viðbrögð peningastefnunefndar og útlit fyrir áframhaldandi veikingu krónunnar á tímabilinu gerir það að verkum að reiknað er með því að verðbólgan verði vel yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Seðlabankinn búinn að missa tökin Verðbólguvæntingar hafa nú um langt skeið verið umtalsvert yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans og hafa þær farið hækkandi undanfarna mánuði. Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur reynt að hafa áhrif á verðbólguvæntingarnar með ítrekuðum yfirlýsingum um að ef verðbólgan lækki ekki á komandi mánuðum (fram að næsta fundi) muni nefndin bregðast við með hækkun stýrivaxta. Efndir á þessum yfirlýsingum peningastefnunefndar hafa ekki alltaf verið í takt við loforð, segir í Vegvísi Landsbankans. Takmarkað aðgengi að erlendu lánsfjármagni gerir það að verkum að erfitt er fyrir fyrirtæki og stofnanir að endurfjármagna erlend lán mbl.is/reuters Afleiðingin er sú að nú veitir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans og stjórnvalda verðbólguvæntingum heimila, fyrirtækja og fjárfesta litla sem enga kjölfestu. Verðbólguþróunin og stighækkandi langtíma-verðbólguvæntingar allt frá upphafi árs 2011 eru afar sterk vísbending um að Seðlabankinn sé búinn að missa tökin á verðbólgunni. Þegar það er raunin öðlast verðbólgan sjálfstætt líf sem nærist á háum verðbólguvæntingum og víxlhækkunum verðlags og launa. Það getur tekið langan tíma fyrir Seðlabankann að vinna upp þann trúverðugleika sem tapast hefur og herkostnaðurinn, í formi hárra stýrivaxta, verður mun meiri en ef brugðist hefði verið við tímanlega. Búist er við því að atvinnuleysi lækki á spátímabilinu samfara auknum umsvifum í efnahagslífinu. mbl.is/Ómar Óskarsson Peningastefnunefndin hefur ítrekað leyft sér þann munað að bíða, vona og sjá hver þróunin verður fram að næsta fundi í stað þess að bregðast við þeim hagvísum sem liggja fyrir hverju sinni. Þess ber þó að geta að veikburða vaxtahækkanir nefndarinnar hafa mætt mikilli andstöðu hjá fyrirferðamiklum aðilum í opinberri umræðu, svo sem talsmönnum launþegahreyfinga og hagsmunasamtökum atvinnurekenda. Tilgangurinn með sjálfstæðum Seðlabanka og peningastefnunefnd er hinsvegar sá að peningastefnan taki mið af lögbundnu verðbólgumarkmiði en ekki því hversu vinsælar nauðsynlegar ákvarðanir kunni að verða, segir í Vegvísi hagfræðideildar Landsbankans. Hagvaxtarhorfurnar næstu 3 árin eru í stórum dráttum svipaðar og reiknað var með í þjóðhagsspá hagfræðideildar Landsbankans í nóvember. Gert er ráð fyrir heldur meiri hagvexti á þessu ári, eða um 3%, sem einkum skýrist af áframhaldandi krafti í vexti einkaneyslu og fjármunamyndunar. Á næsta ári er útlit fyrir að hagvöxtur hægist niður í 2% en aukist á ný í 3% 2014. Einkaneyslan eykst Gert er ráð fyrir að vöxtur einkaneyslunnar á þessu ári verði meiri en áður var reiknað með en að verulega dragi úr vextinum 2013 og 2014 eftir því sem gengur á sparnað landsmanna enda muni kaupmáttur lítið aukast þessi tvö ár. Spá um þróun samneyslunnar er nánast óbreytt frá því í nóvember en reiknað er með 1-1,5% árlegri aukningu. Útlit er fyrir minni opinbera fjárfestingu í ár eða aðeins um 2% vexti milli ára en meiri aukningu 2013 og 2014. Einnig er nú spáð talsvert minni vexti atvinnuvega- og íbúðafjárfestingar en í nóvember. Krónan veikist Takmarkað aðgengi að erlendu lánsfjármagni gerir það að verkum að erfitt er fyrir fyrirtæki og stofnanir að endurfjármagna erlend lán, segir í Vegvísi Landsbankans. Þetta veldur vaxandi þrýstingi á gengi krónunnar þar sem eftirspurn eftir gjaldeyri er einfaldlega mun meiri en framboðið. Reiknað er með því að gengi krónunnar veikist um 3% árlega á spátímanum, þrátt fyrir áframhaldandi afgang af vöru og þjónustuviðskiptum við útlönd. Búist er við því að atvinnuleysi minnki á spátímabilinu samfara auknum umsvifum í efnahagslífinu. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysið verði 6% að meðaltali árið 2012, 5% árið 2013 og 4,7% árið 2014.//////það er ekkert annað í stöðuni en að taka verðtryggina af og það strax!!!Ef ekki hrinur þetta kerfi allt,og svo bara borga fólkinu sem vill spara,jákvæða vexti ,það er bara hætt að tala um sparnað!!!þetta þjoðfélag er á þvi að gera okkur að aumingjum og nenna ekki að vinna!!þar endar það með 7-9% atvinnuleysi sem er viðvernadi,ef ekki verður tekið á þessu fljótt,endar þetta með hörmungum ekki spurning!!!Halli gamli
Verðbólguhorfur hafa versnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.