Mikilvægt að samstaða náist/Þetta kjördæmapot þarna í þessu kjördæmi er með eindæmum!!!

Mikilvægt að samstaða náist Innlent | mbl | 13.6.2012 | 20:59 „Við erum að sjálfsögðu ánægð með að málið skuli vera komið þetta langt og að þessi niðurstaða sé komin,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, en Alþingi samþykkti síðdegis að senda frumvarp um fjármögnun VaðlahEiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri
eiðarganga til fjárlaganefndar fyrir þriðju umræðu. Eiríkur Björn segir þessa niðurstöðu vera ákveðið spennufall enda mikil vinna sem liggur að baki. „Nú skiptir öllu máli að samstaða náist í samfélaginu að fara í þessa framkvæmd,“ segir Eiríkur Björn og bætir við að ekki sé eftir neinu að bíða lengur. Segir hann mikilvægt að hefja framkvæmdir sem allra fyrst enda skipta göngin miklu máli fyrir íbúa á svæðinu. Brýnt er að allir aðilar taki höndum saman og framkvæmdin verði að veruleika. „Það skiptir okkur öllu máli, nú þegar búið er að taka ákvörðun, að menn sameinist um að láta þetta ganga. Við munum a.m.k. leggja okkar fram til þess.“///////Þetta kjördæmapot þarna í þessu kjördæmi er komið úr böndum alveg!!! fyrst Heðinsfjargöng nú Vaðlaheiðargöng!! Ekki er maður á móti göngum als ekki það þarf bara að forgansraða,og þar koma á undan á Vestfjörðum og Norfjarðargöng og fl.jafnvel!! en maður horfið á hvernig þetta skiptist á Alþingi og þar var það auðvitað þeirra þingmenn í kjörd. og svo líka flestir stjórnasinnar það gera atkvæðin,og einnig framsóknar menn 3 allavega, en þetta blað i sögunni að segja þetta einkaframkvæmt er ekki rétt ríkið leggur til alla peningana !!!og svo vegjöld í 30-40 ár þetta nýtt!! sem á að koma á eða hvað,nú þegar við bílaeigendur borgum i skatt um 80-90 milljarða en ekki notað í vegina nema 30 milljarða af þvi,svo er Sundabraut búin aðvera í aðlögun i 15 ár en hvað þar gætu notað vikulega um helmingur landsmanna,er þetta réttlætið okkar????/Halli gamli

mbl.is Mikilvægt að samstaða náist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi Helgason

Það eru nú "bara" orðin 38 ár síðan ég kom fyrstur manna, fram með þessa hugmynd að gera veggöng í gegnum Vaðlaheiðina. Það hefði nú mátt vera búið að gera þessi göng, fyrir langa löngu síðan.

En nú í dag, er það mín skoðun, að það eigi að fresta ákvörðun um gerð þessara ganga, eða þar til að ákveðið verði að hætta við gjaldtöku fyrir umferð í gegnum göngin.

Jafnframt því að slá þessu á frest þá er ég sammála því að borun Norðfjarðaganga verði næst á dagskrá.

Tryggvi Helgason, 14.6.2012 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1046584

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband