Samningur Huangs tilbúinn í júlí/Það er gott ef allt gengur eftir þarna,ekki mun af veita!!

Samningur Huangs tilbúinn í júlí Innlent | mbl.is | 13.6.2012 | 10:12 Samningur Huangs Nubo um leigu á Grímsstöðum á Fjöllum er enn ófrágenginn. Fram kom í viðtali við kínverska fjárfestinn fyrr á árinu að haHuang Nubo var bjartsýnn þegar hann sagðist myndu skrifa...
nn myndi skrifa undir samninginn um miðjan júní. „Stefnt er að því að málið verði afgreitt í júlí ef allt gengur að óskum,“ segir bæjarstjóri Norðurþings. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings segir málið á góðri siglingu „samningsgerðinni miðar ágætlega, þetta er í lögfræðifasa í augnablikinu.“ Hann segir að samningurinn sé langt á veg kominn. Bergur segist ekki halda að samningurinn muni liggja fyrir í júnímánuði. „Stefnt er að því að þetta verði afgreitt í júlí ef allt gengur að óskum.“ Að sögn Bergs mun skipulagsvinna og hönnun hótelsins taka allt að einu og hálfu ári eftir að samningsgerð lýkur. Framkvæmdir hefjast því að öllum líkindum ekki fyrr í byrjun árs 2014. Bergur hefur heimsótt eitt af hótelunum í eigu Huangs og segir fjárfestinn stefna að því að hótelið sem mun rísa á Grímsstöðum verði svipað, en um er að ræða lúxushótel með góðri aðstöðu fyrir gesti. Halldór Jóhannsson, talsmaður Huangs á Íslandi, vill ekki spá fyrir um hvenær samningurinn muni liggja fyrir. „Það var aldrei búið að setja dagsetningu á þetta, miður júní var einungis viðmið og þetta er ennþá í vinnslu,“ segir Halldór. Að hans sögn er samningsgerðin tímafrek. „Þetta er flókið mál enda mörg sveitarfélög sem koma að því.“ Ekki er ljóst hvenær samningurinn mun liggja fyrir samkvæmt upplýsingum frá Halldóri. „Ég á von á að það fari að draga til tíðinda fljótlega, en get ekki sagt til um nákvæma tímasetningu.“Hann sagði enn fremur að ekki sé enn búið að semja um lánstímann.///////Maður bara vonar að þetta séu pottþéttir samningar,og allt gangi eftir sem sagt er,það er auðvitað að mörgu að hyggja þarna en ,það liggur ekki mjög á bara gera vel og tryggt!!Þvi það verður ekki byrjað fyrr en ársbyrjun næsts árs,en okkur mun ekki veita af svo framkæmdum,skapar vinnu og gjaldeyrir!!!!/Halli gamli

mbl.is Samningur Huangs tilbúinn í júlí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1046584

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband