Sérstaðan sögulega ákvörðuð/Það er skrítið ef þessi þjóðkirkja? á að hafa forgang!!!

Sérstaðan sögulega ákvörðuð Innlent | mbl.is | 25.6.2012 | 15:23 „Ég er ekki í hópi þeirra sem telja það slæmt að þjóðkirkjan hafi sérstöðu. Enda er sérstaða þjóðkirkjunnar staðreynd, nánast óháð okkar vilja. Hún er sögulega ákvörðuð,“ sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra í ræðu sinni á Prestastefnu sem hófst í morgunEn á meðan þjóðkirkja yrði við lýði hlytu að vakna spurningar um forsendur sérstöðu hennar og í hverju hún fælist. Skiptar skoðanir væru í þeim efnum. „En þjóðkirkjan er stofnun jafnframt því sem hún er félagsleg hreyfing og sem slík hlýtur hún að spyrja sjálfa sig spurninga sem þessarar: Hvers konar stofnun vil ég vera? Er stór stofnun betri en smá? Er þörf á þjóðkirkju? Er hætt við því að með áherslu á hið stofnanalega, hið veraldlega, þoki boðun fyrir umgjörð?“ sagði Ögmundur. Í því sambandi nefndi Ögmundur að í stjórnmálum væri það viðtekið að betra væri að stjórnmálaflokkar væru stórir en litlir þar sem þeir væru líklegri til þess að ná völdum, halda þeim og koma stefnu sinni í framkvæmd. Þegar hann hafi verið að alast upp hafi flokkarnir yst til vinstri aldrei verið stórir og aldrei komist til valda. En kröftug grasrótarumræða hefði hins vegar hafi mikil áhrif til breytinga. Velti hann upp þeirri spurningu hvort það sama ætti við um þjóðkirkjuna. „Hugsunin um margt smátt og hin þúsund blómstrandi blóm hefur alltaf hrifið mig og almennt er ég talsmaður margbreytileika sem getur myndað fagurt en jafnframt kraftmikið lífsmynstur. Mér hugnast vel sú hugsun að margir akrar blómstri hlið við hlið. Þetta eru vissulega viðhorf sem íslenska þjóðkirkjan hefur haft í heiðri. Á undanförnum misserum þykir mér þjóðkirkjan hafa sýnt svo ekki verður um villst að hún þolir gagnrýna umræðu um sjálfa sig í samtíðinni og hún er reiðubúin að horfa opnum augum til framtíðar,“ sagði hann.///////Það er svoltið skrítið, þegar Dómsmálin eru þarna að verki með að úskurða um að Þjóðkirkja skuli hafa forgang eða yfirleitt heita þjóðkirkja,það er trúfrelsi í landinu !!!éwg er mjög trúaður maður en hefi verið í Fríkikju alla mína æfi og var einn af stofnendum Ó.H.S.sem er Fríkirkja einnig og þar er rekið fyrir sóknargjöldum bara,svo og Kvennefélag sem safnar og selur kaffi og kökur!!þetta hefst allt og það er málið!! en sóknargjöldin eru of lág ríkið tók uppá þvi að lækka þau sem ekki á að gera,það er ekki nema gróði Ríkisins að hækka þau og innheimta,en lostna við að borga þessari þjóðkirkju Prestalaun og mikið meira í kirkjur það getur sparað milljarða,þetta sem eir bera við að eiga það inni er bara tóm tjara!!!!, löngu uppiurið,með þessar jarðir/Halli gamli
mbl.is Sérstaðan sögulega ákvörðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband