Innlent | mbl.is | 5.7.2012 | 15:53
Borgarráð samþykkti í dag tillögu umhverfis- og samgönguráðs um stóraukna flokkun og hirðingu pappírsefna og skilaskyldra umbúða. Frá og með 1. október mun ekki verða leyft að setja pappírsefni og skilaskyldar umbúðir með í ílát fyrir almennt heimilissorp.
Í haust mun Reykjavíkurborg stórefla almenna flokkun á pappírsefnum frá heimilissorpi líkt og hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Pappír er verðmætt endurvinnsluefni og með því að flokka hann frá almennu heimilissorpi sparar Reykjavíkurborg um 43 milljónir í móttökugjöldum vegna urðunar á blönduðu sorpi.
Íbúar eru ennfremur hvattir til að setja málma, t.a.m. niðursuðudósir, álpappír og annan málm er til fellur á heimilum lausan í tunnu fyrir almennt heimilissorp. Sorpa hefur náð frábærum árangri í að flokka málma frá blönduðu sorpi með vélum. Enn betri árangur næst ef íbúar setja málminn lausan í tunnuna en ekki í poka.
Aðalbreytingin á sorphirðu í Reykjavík felst í því að ekki má lengur að setja pappír og umbúðir með skilagjaldi í almennt heimilissorp.
Íbúar kannast vel við slíkt fyrirkomulag því ekki hefur verið leyfilegt að setja garðaúrgang, grófan úrgang, rafhlöður og önnur spilliefni í tunnur fyrir almennt heimilissorp í áratugi og hefur sorphirðan fylgst með því að farið sé eftir þeim reglum. Nú bætast pappírsefnin og skilagjaldsumbúðir einfaldlega við.
Íbúar munu fá góðlátlegar viðvaranir í fyrstu fjögur skiptin ef pappírsefni eða skilagjaldsumbúðir eru ekki flokkaðar frá en síðan kemur óhjákvæmilega að því að tunnan verður skilin eftir óhirt rétt eins og verið hefur varðandi önnur efni sem ekki mega fara í heimilissorpið. Verður þá að greiða sérstaklega fyrir aukaferð til losunar.
Á meðan breytingarnar ganga yfir munu íbúar fá nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig staðið skuli að flokkun pappírs frá almennu heimilissorpi og eru Reykvíkingar hvattir til þess að kynna sér þær vel, segir tilkynningu frá Reykjavíkurborg.///////Við verum að taka vel við þessu !!!og bjarga þessu sem er nýtanlegt ,einnig sitja sér eiturefni og svo framvegis ,þetta er gott að gera í svona áföngum,og svo bara gleyma skrefagjaldinu,en byggingarsamþykkt tekin í gegn ,allt vill lagið hafa og það bara gott/Halli gamli
Borgarbúum gert að bæta flokkun sorps | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 1046584
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég mun halda áfram að henda dagblöðum og fjölpósti í sorptunnuna því endurvinnslugámurinn fyrir pappír er einhver staðar lengs í burtu frá mér.
Ef borgin ætlar svo að vera með vesen við mig þá hendi ég þessu bara í tunnuna hjá nágrannanum.
Jóhannes (IP-tala skráð) 5.7.2012 kl. 18:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.