Stefnum í þveröfuga átt////Því miður er þetta rétt og sennilega vel það?????

tefnum í þveröfuga átt
Innlent | Morgunblaðið | 7.7.2012 | 7:30

Megin skýring hagvaxtar á Íslandi er aukin neysla innanlands „Það er hægt að gleðjast yfir einhverjum örfáum brotabrotum í hækkuðum hagvaxtarspám en í fyrsta lagi þá er verið að spá minni hagvexti en fyrir ári og með þessu áframhaldi tekur það okkur mjög langan tíma að ná sömu stöðu og við vorum í,“ segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

SA gagnrýndi í fréttatilkynningu í gær yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því á fimmtudag þar sem hún fagnaði því að þjóðhagsspá Hagstofu gerði ráð fyrir 0,2% meiri hagvexti á þessu ári og því næsta. Sagði í tilkynningu SA að sennilega væri þetta í fyrsta skipti sem „ríkisstjórnin sendir frá sér sérstaka fréttatilkynningu í kjölfar birtingar hagspár Hagstofunnar“.

Hannes segir meginvandann vera þann að hagvöxturinn sé ekki byggður á auknum útflutningstekjum. „En það er það sem við þurfum á að halda, við þurfum að fá mikinn viðskiptaafgang til þess að geta staðið undir afborgunum af skuldum okkar í erlendum gjaldmiðlum og til að geta styrkt stöðu krónunnar,“ segir Hannes.

Neikvæður viðskiptahalli

Að sögn Hannesar þurfa menn raunar ekki ávallt að hafa áhyggjur af viðskiptahalla. „Ef viðskiptahallinn er vegna þess að við erum að fjárfesta í einhverri útflutningsstarfsemi, að kaupa fjárfestingarvörur frá útlöndum, þá er það ávísun á tekjur í erlendum gjaldmiðlum í framtíðinni,“ segir Hannes og bætir við: „Ef maður lítur yfir sviðið núna þá er ekki mikið slíkt á döfinni.“

Þá segir Hannes að aukin neysla innanlands sé meginskýringin á þeim hagvexti sem hér hefur verið, en þann hagvöxt segir hann kannski ekki vera byggðan á varanlegum grunni ef ekki fylgja tekjur á móti hinni auknu neyslu.//////Þarna erum við Hannes G Sigurðsson mikið sammála!!! þó svo við værum það ekki alltaf þegar hann vann á sumrin hjá okkur í Slipp málningarverksmiðju !!!þetta er mikil syndarmennska og eiginlega að mestu neikvætt!!ég hefi sagt það lengi að þessi uppsveifla er bara meira og minna blöff eins og hann réttilega segir þarna/Halli gamli


mbl.is Stefnum í þveröfuga átt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1046584

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband