Tala látinna hækkar í Rússlandi/ þetta er mjög svo alvarleg flóð og mikil mannslát!!!

Tala látinna hækkar í Rússlandi
Erlent | AFP | 7.7.2012 | 13:01

Myndin er úr safni.Lögreglan í Rússlandi segir að tala látinna af völdum flóða í héraðinu Krasnodar fari hækkandi. Nú segir lögreglan að 87 manns hafi látist af völdum skyndiflóða í nótt.

Lögreglan segir að 76 lík hafi fundist í Krymsk, þar af lík 10 ára gamals barns. Í Gelendsjík, sem er við Svartahaf, fundust níu lík og tvö í Novorossiisk undanfarna tvo daga.

Um 1.000 björgunarsveitarmenn taka nú þátt í því að aðstoða nauðstadda eða leita að fólki á lífi.

Héraðsstjórinn í Krasnodar segir að þetta séu verstu flóð sem sést hafi á svæðinu í 70 ár.  Hann telur hins vegar að ástandið muni skána eftir því sem á líður í dag.

Íbúi, sem á ættingja í Krymsk, segir að flóðin hafi komið íbúnum á óvart. Margir þeirra hafi brugðist við með að hlaupa út á götu um miðja nótt í nærfötum einum fata og vafið börn sín í teppi. Sumir hafi aðeins náð að taka vegabréfið með sér út.

Þá er rafmangslaust á svæðinu og allar verslanir lokaðar. Margi íbúar séu því örvæntingarfullir./////////Þetta er mjög svo alvarlegt mál að Svona ástand skapist um miðja nótt og rafmagn fer af og engin getur björg sér veitt,sama hvar er !!!!þetta er fólk eins og við blessað!!!!Við BARA vonum að þessu linni  fljótt!! Halli gamli


mbl.is Tala látinna hækkar í Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1046585

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband