AGS svartsýnn á heimshagvöxt//// gengur ekki upp!!!!!!

AGS svartsýnn á heimshagvöxt
Viðskipti | Morgunblaðið | 7.7.2012 | 11:30

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, varaði í gær við því að efnahagslíf alþjóðahagkerfisins væri enn að hægja á sér og sagði að næsta hagvaxtarspá sjóðsins myndi taka mið af versnandi horfum.
Benti hún meðal annars á aðgerðir ýmissa seðlabanka undanfarna daga máli sínu til stuðnings en vaxtalækkanir bæði í Evrópu og Kína bera umfangi vandans sem steðjar að hagkerfum heimsins skýrt vitni.

Lagarde var í Japan þar sem hún ræddi m.a. við ráðamenn um ástand efnahagsmála og áhrif vandans á evrusvæðinu þar í landi.

Spáðu 3,5% hagvexti

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birtir uppfærðar hagvaxtarspár fyrir heimshagkerfið á þriggja mánaða fresti. Í apríl síðastliðnum hækkaði sjóðurinn hagvaxtarspá sína fyrir árið 2012 í 3,5% 2012 úr 3,3% frá því í janúar. Jafnframt hækkaði sjóðurinn spá um hagvöxt fyrir árið 2013 í 4,1% úr 3,9%. Næstu spár er að vænta hinn 16. júlí næstkomandi. Að sögn Lagarde verður sú spá síðri þar sem enn hefur harðnað á dalnum í heimshagkerfinu.

Seðlabankar grípa til aðgerða

Seðlabankar víða gripu til frekari aðgerða í vikunni til að bregðast við vandanum á evrusvæðinu.

Seðlabanki Evrópu lækkaði stýrivexti úr 1% í 0,75% og innlánsvexti viðskiptabanka úr 0,25% í 0%. Sagði Mario Draghi, bankastjóri, að lækkunin hefði verið nauðsynleg í ljósi mikillar óvissu sem dregið hefði úr væntingum á svæðinu.

Seðlabanki Bretlands tilkynnti einnig stýrivaxtaákvörðun í vikunni. Héldust stýrivextir þar í landi óbreyttir 0,5%, en vextir þar hafa ekki verið lægri í yfir 300 ár. Tilkynnti bankinn frekari aðgerðir en hann hyggst auka peningamagn í umferð um 50 milljarða punda sem vonast er til að dragi úr lausafjárþurrð og hvetji til fjárfestinga í landinu.

Vaxtalækkanir voru ekki einungis bundnar við seðlabanka í Evrópu í vikunni en Seðlabanki Kína kom öllum á óvart þegar hann lækkaði einnig stýrivexti sína í annað skiptið á rúmum mánuði til að bregðast við versnandi horfum. Nema stýrivextir þar í landi nú 6%.

Að sögn FT þurfti Mario Draghi að kveða niður orðróm um að seðlabankarnir hefðu haft með sér samráð um ákvarðanirnar.///////alvarlegt mal mjög og verður að taka mjög a strax,maður hefur lengi´sagt svona en enginn hlustar als ekki,en kerla veit hvað häun syngur ekki spurning////Halli gamli


mbl.is AGS svartsýnn á heimshagvöxt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halli minn. Gott að frúin skuli viðurkenna vandann. Það er ekki hægt að reka fjármálakerfi heimsins áfram á fölsuðum innistæðum/peningum og föllnu fjármálakerfi. Hver sem viðurkennir þá staðreynd, er að horfast í augu við raunveruleikann. Orð eru til alls fyrst, og ber að þakka fyrir allt sem fólk viðurkennir, því þá er hægt að taka á vandanum á einhvern hátt.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.7.2012 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1046585

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband