Óheimilt samneyti mismunandi tómata///Þarna er á regin munur!!!!!!

Óheimilt samneyti mismunandi tómata
Innlent | Morgunblaðið | 9.7.2012 | 5:40

Tómatar „Þetta er lögbrot og ég geri kröfu til þess að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga fylgi því eftir að ekki sé verið að svindla á þessu,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, um kvartanir þess efnis að verslanir setji erlenda tómata í kassa merkta Sölufélaginu.
garðyrkjumanna og blandi jafnvel saman innlendu og erlendu grænmeti sem selt er óplastað.

Georg Ottóssyni á garðyrkjustöðinni Jörfa sagði í Morgunblaðinu á laugardag að Jörfi sendi frá sér  þrjú tonn á viku af papriku, 500 kassa. „Þeim er pakkað inn tveimur saman svo landinn geti greint að þetta er örugglega íslenskt. Ef þær væru sendar í lausu myndi kaupmaðurinn blanda öllu saman og búa til eitthvað verð og enginn vissi hvað hann væri að kaupa,“ segir Georg.

Tómatar

Tómatar mbl.is/Gúna

Í Jörfa ræktar Georg tómata og paprikur í 4.500 fermetra gróðurhúsum og stundar jafnframt útirækt á um 15 hekturum þar sem hann er með spergilkál, blómkál, kínakál og hvítkál. Ásamt því að reka Jörfa er hann með Flúðasveppi og er formaður Sölufélags garðyrkjumanna. Georg segir hljóðið í garðyrkjubændum vera gott.

„Það er aukning í grænmetisneyslu og á meðan Íslendingar vilja frekar íslenskt en innflutt erum við mjög ánægðir. Við erum að glíma svolítið við innflutninginn og það sem mér finnst erfiðast er að neytandinn veit ekki alltaf hvort hann er að kaupa íslenskt eða innflutt. Það er kannski verið að selja innflutta tómata í kössum frá Sölufélagi garðyrkjumanna. Ég held að þeir kaupmenn sem eru að gera slíka hluti verði fyrir barðinu á neytandanum síðar. Það er ekki nýtt undir sólinni að menn séu að falsa vörumerki en það á ekki að vera neitt vafamál í þessu fyrir neytandann.“///////Þetta er ólíku saman að jafna!!!' þarna er regin munur á !!!Íslensku tómatar eru svo millu betri,hvað kemur mönnum til að gera svona??? þetta skal vera ólöglegt!!! og ber að banna algjörlega!!!!!Halli Gamli


mbl.is Óheimilt samneyti mismunandi tómata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr,heyr,

Íslendingar eru bestir í öllu og allt íslenskt er best.  Ekki vil ég sjá íslenska eðal-tómattinn saman í kassa með hinum útlensdka.

Burt með útlendska tómata, þeir rugla mig bara í rýminu.

J.

Jonsi (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband