Fæðingum fækkaði um 20% á HSS/Kreppan segir sitt þarna!! og ekkert lát á því þó: annað sé sagt daglega!!!!

Fæðingum fækkaði um 20% á HSS Innlent | mbl.is | 16.7.2012 | 14:39 Fæðingum á Heilbrigðisstofnun SuðurnHeilbrigðisstofnun Suðurnesja.
esja fækkaði um tuttugu prósent árið 2011 frá fyrra ári. Á fæðingardeild HSS fæddust 138 börn í fyrra en árið 2010 voru þau 172 börn. Innlögnum á sjúkrahúsið fækkaði jafnframt um tuttugu prósent milli ára, fóru úr 1.666 árið 2010 í 1.325 í fyrra. Þetta kemur fram í ársskýrslu HSS. Þá var heildarfjöldi ómskoðana í fyrra 672 en 895 árið 2010 og er það fækkun um 25%. Er um að ræða ómskoðun sem öllum verðandi mæðrum er boðið upp í 20. viku og síðan aftur við 34. viku meðgöngu, en þá er stærð og vöxtur barns metinn. En þó svo fæðingum og ómskoðunum hafi fækkað töluvert voru 1.344 komur á göngudeild sem tengd er tengd meðgöngu og barneignum, en það er 45% aukning frá árinu 2010. Þjónustuna nota barnshafandi konur sem koma í hjartsláttarrit, mat á byrjandi fæðingu, nálastungur og mæður með vandamál tengd brjóstagjöf. Í pistli Sigríðar Snæbjörnsdóttur, forstjóra HSS, sem birtur er í ársskýrslunni segir að kreppan hafi haft áhrif á HSS eins og aðrar heilbrigðisstofnanir og niðurskurður og aðhald í fjármálum og rekstri einkennt andrúmsloftið. Meðal annars hafi starfsemi fæðingadeildarinnar gengið í gegnum erfitt þróunarferli sem lauk með sameiningu mæðraverndar og fæðingadeildar í Ljósmæðravaktina. Hún segir þó jafnframt að reksturinn hafi verið í jafnvægi undanfarin ár, sem sé frábær árangur á ólgutímum, þó ekkert megi út af bregða./////Þetta segir okkur allt sem segja þarf um krepuna hún er ennþá á fullu og fólk veigará okkur að híun sé báuin og allt i lukkunnar velstandi!!!!þetta er dæmigert samt að fólk bara vill ekki eiga börn i svona þjóðfelagi,þar sem allt er skorið niður við trog og skattar í hæðstu hæðum,Atvinnuleysi og framkvæmdaleysi,þetta ríkisstjórn vor er óhæf það sjá allir sem vilja nema kommar//Halli gamli

mbl.is Fæðingum fækkaði um 20% á HSS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband